Skoðanarkönnun
Hvað hefur þú sungið lengi í kvennakór?


13.05.2010 - Kyrjurnar, vegir liggja til allra átta

Vegir liggja til allra átta er yfirskrift vortónleika Kyrjanna sem verða laugardaginn 15. maí í Seltjarnarneskirkju klukkan 17.00.

Flutt verða mörg af frábærum og sígildum lögum sem Ellý Vilhjálms og Haukur Mortens sungu og má þar nefna, Sveitin milli sanda, Hæ Mambó, Tondeleyó og Í grænum mó.

Stjórnandi tónleikanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir, píanóleikari er Halldóra Aradóttir og um ásláttarhljóðfæri sér George Claassen.

Miðaverð er 1500 krónur og er forsala hjá kórkonum og við innganginn.

 

« Til baka