Skoðanarkönnun
Hvað hefur þú sungið lengi í kvennakór?


26.05.2010 - Söngur, súpa og dans í Kópavogi
Kvennakór Kópavogs ásamt vinakór frá Leeds í Bretlandi, Good in Parts bjóða til skemmtunar þar sem einnig koma fram Karlakór Kópavogs og hljómsveitin sem ekki vill láta nafns síns getið. Skemmtunin verður haldin í Smáranum í Kópavogi 30. maí og hefst kl. 19.00. Skemmtileg og fjölbreytt efnisskrá verður í boði hjá kórunum.
Boðið verður upp á afbragðs sjávarréttasúpu eldaða af kórkonum, heimilislega stemmingu og opin bar! Verð er 1700 kr.
« Til baka