
Gígjan
Samband íslenskra kvennakóra
Gígjan samband íslenskra kvennakóra var stofnað 5. apríl 2003.
Markmið með stofnun sambandsins er að efla starfsemi og samstarf kvennakóra.
Einnig að efla samskipti við kvennakóra erlendis og safna og miðla upplýsingum um starfsemi og sögu íslenskra kvennakóra.
Aðildakórar Gígjunnar árið 2026 eru 25 talsins.
12. Landsmót Gígjunnar í Reykjanesbæ 2026
Dagana 11. - 13. júní
Kynnið ykkur glæsilega dagskrá hér á heimasíðu mótsins.
ELDRI FRÉTTIR

Tímamót.
Þann 9. júní 2026 var stofnað Kórasamband Íslands eða KÓRÍS sem eru heildarsamtök sem munu vinna að málefnum allra kóra landsins.
Öll kórasamböndin eru aðilar að sambandinu er þau eru: Landssamband blandaðra kóra (LBK) Gígjan, samband íslenskra kvennakóra, Samband íslenskra karlakóra (SÍK), UngÍkór Íslandi og Félag íslenskra kórstjóra (FÍK)
Framhaldsaðalfundur verður haldinn 26. september 2026 og þá verður sannarlega tilefni til að skála.
Til hamingju allir kórar :)
Sjáumst á landsmóti Gígjunnar um helgina.

Fréttir
12. Landsmót Gígjunnar í Reykjanesbæ 2026
Kæru kórfélagar íslenskra kvennakóra um land allt
Kvennakór Suðurnesja vinnur nú að undirbúningi fyrir 12. landsmót íslenskra kvennakóra 2026. Mótið verður haldið í Reykjanesbæ dagana 11-13 júní 2026. Þessi dagsetning var valin til að við getum gert mótið sem glæsilegast og nýtt okkur besta mögulega húsnæði og aðstöðu sem er í boði á svæðinu.
Kórinn er nú gestgjafi mótsins í annað sinn, síðast var það í okkar höndum 2002, við erum spenntar að fá að halda það aftur og verður öllu tjaldað til hér á svæðinu.
Mótin hafa verið hvert öðru glæsilegra og er ofarlega í minni síðasta landsmótið í Reykjavík sem var mikil upplifun og skemmtun.
Tengill á kynningarmyndaband:https://www.facebook.com/share/v/1Ag5x4B6HT/?mibextid=wwXIfr

27. febrúar 2026
Tveir nýjir kórar hafa gengið til liðs við Gígjuna, okkar frábæra samfélag kvennakóra og teljum við nú 25 kóra í sambandinu.
Það eru Kvennakórinn Hrynjandi og Flugfreyjukórinn
Innilega velkomnar kæru söngsystur.









