top of page

Kveðja frá stjórn Gígjunnar

Tólfta landsmót Gígjunnar var haldið í Reykjanesbæ dagana 11.-13.júní sl.

​

Gestgjafar mótsins voru Kvennakór Suðurnesja og tóku 12 kórar þátt, eða um 330 kórkonur, víðsvegar að af landinu. Kórkonur byrjuðu að streyma á svæðið á fimmtudeginum og hófst mótið um miðjan dag með hefðbundinni dagskrá.

Mótið var svo sett með pompi og prakt í Hljómahöll en hún var heimahöfn mótsins.

Föstudagurinn leið áfram með smiðjuæfingum og sameiginlegum æfingum og síðan endaði dagurinn á tónleikum kóranna. Var það sannkölluð tónlistarveisla þar sem allir 12 kórar mótsins fluttu efni að eigin vali og var gaman að sjá og heyra alla fjölbreytnina í lagavali, kórbúningum og flutningi.

Á laugardeginum héldu æfingar áfram, lög æfð í vinnusmiðjum og einnig voru sameiginleg lög æfð en hefð er fyrir því að sérstakt mótslag er samið fyrir hvert landsmót og að þessu sinni var landsmótslagið samið af Magnúsi Þór Sigmundssyni við ljóð Rutar Gunnarsdóttur, Taktur trumbunnar, en Rut var fyrrum kórkona í Kvennakór Suðurnesja sem lést árið 2006. Einnig fluttu kórarnir saman lagið Little talks eftir hljómsveitina Of monsters and men. Tónleikarnir voru haldnir í Stapaskóla og tókust frábærlega.

Mótinu lauk svo með lokahófi þar sem öllu var tjaldað til og skemmtu kórkonur sér konunglega.

​

Landsmót Gígjunnar eru haldin á þriggja ára fresti.

Að halda landsmót er risastórt verkefni sem krefst mikillar skipulagningar og vinnu og í vetur auglýsti stjórn Gígjunnar eftir áhugasömum kórum til að halda næsta mót. Við í stjórninni urðum mjög glaðar þegar svar barst og kvennakórarnir Vox Feminae, Cantabile og Aurora frá Reykjavík buðust til að halda mótið. Við tókum því boðið fagnandi og verður því landsmót Gígjunnar haldið í Reykjavík vorið 2029.

 

Stjórn Gígjunnar vill þakka Kvennakór Suðurnesja kærlega fyrir frábært og skemmtilegt landsmót og öllum kvennakórunum 12 fyrir þátttökuna, sönginn og gleðina. Án ykkar væri þetta ekki nærri eins skemmtileg.

​

Við hvetjum alla til að skoða frábærar myndir og upptökur frá mótinu á facebooksíðu mótsins Landsmót íslenskra kvennakóra 2026 en hér fylgir með myndband frá mótinu með flutningi 330 kvenna á landsmótslaginu Taktur trumbunnar ásamt laginu Little talks.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur allar á landsmóti í Reykjavík vorið 2029.

12. Landsmót Gígjunnar í Reykjanesbæ 2026

Kæru kórfélagar íslenskra kvennakóra um land allt 

​

Kvennakór Suðurnesja vinnur nú að undirbúningi fyrir 12. landsmót íslenskra kvennakóra 2026. Mótið verður haldið í Reykjanesbæ dagana 11-13 júní 2026. Þessi dagsetning var valin til að við getum gert mótið sem glæsilegast og nýtt okkur besta mögulega húsnæði og aðstöðu sem er í boði á svæðinu.

​

Kórinn er nú gestgjafi mótsins í annað sinn, síðast var það í okkar höndum 2002, við erum spenntar að fá að halda það aftur og verður öllu tjaldað til hér á svæðinu.

Mótin hafa verið hvert öðru glæsilegra og er ofarlega í minni síðasta landsmótið í Reykjavík sem var mikil upplifun og skemmtun.

​

Tengill á kynningarmyndaband:​https://www.facebook.com/share/v/1Ag5x4B6HT/?mibextid=wwXIfr

480449070_122100320750779657_2712161409686205936_n.jpg
695775397_1476024494060183_5334286520567564858_n.jpg

27. febrúar 2026

Tveir nýjir kórar hafa gengið til liðs við Gígjuna, okkar frábæra samfélag kvennakóra og teljum við nú 25 kóra í sambandinu.Það eru Kvennakórinn Hrynjandi og FlugfreyjukórinnInnilega velkomnar kæru söngsystur.

Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023  

31. ágúst 2022

Eftir síendurteknar frestanir vegna heimsfaraldurs mun Landsmót Gígjunnar, sem til stóð að halda í maí 2020 loksins verða að veruleika.

 

Ellefta Landsmót Gígjunnar, sambands íslenskra kvennakóra verður haldið í Reykjavík dagana 4.- 6.maí. Eins og áður mun Kvennakór Reykjavíkur sjá um skipulagningu mótsins og er markmið kórkvenna í Kvennakór Reykjavíkur að allar konur sem þátt taka í mótinu, njóti hverrar stundar sem allra best og að það náist að skapa þá frábæru stemmingu í Reykjavík, sem hefur einkennt landsmótin fram til þessa, þrátt fyrir stærð höfuðborgarinnar.

 

Endurskipulagning mótsins er hafin og miðar skipulag við áður útgefna dagskrá fyrir mótið í maí 2020. Þó er ljóst að einhverjar breytingar verða en staðfest er að mótið verður haldið í Háskólabíó og nærumhverfi og tónleikar kóranna verða í Eldborg Hörpu eins og áður hafði verið ákveðið.

 

Við erum í viðræðum við smiðjustjóra og nú þegar er ljóst að einhverjar breytingar verða á smiðjunum. Óvíst er með lög sem búið var að senda út en þetta mun allt skýrast fljótlega.

 

Sameiginleg lög verða þau sömu og áður og er annað þeirra, Til gleðinnar, mótslagið okkar

og er sérstaklega samið af þessu tilefni

 

Til gleðinnar

Lag: Gunnsteinn Ólafsson

Ljóð: Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum

​

Í kór

Lag: Herman Hupfeld

Texti: Álfheiður Ingólfsdóttir

​

Eins og áður skiptir gríðarlegu máli fyrir landsmótsnefnd að hafa einhverja hugmynd um fjölda kóra og kvenna sem ætla að taka þátt á mótinu. Til dæmis þá sendur nú yfir leit af stað fyrir lokahóf og þá skiptir mjög miklu hvort verið er að leita að stað sem tekur 800 konur, 500 eða 300. Því biðlar nefndin því til ykkar að láta vita hvort ykkar kór stefnir á mót og þá sirka hversu margar konur með því að senda póst á landsmot2020@kvennakorinn.is

 

Að öðru leiti er tímalína ca þessi:

Ágúst 2022 - Forskráning hefst - óbundin skráning með áætluðum fjölda kórkvenna.

Nóv 2022 -  Formleg skráning á mótið og í smiðjur hefst.

Nóv 2022 -  Tengiliðir kóra staðfestir við landsmótsnefnd

Jan 2023 -    Lokafrestur til að greiða staðfestingagjöld

Jan 2023 -    Opnað fyrir nótur í smiður

Mar 2023 -  Lokafrestur til að greiða mótsgjald

Maí 2023 -  Landsmót - Syngjandi vor 2023

Mótsgjald er ekki komið á hreint en stefnt er á að halda því á svipuðum nótum og búið var að gefa út en þó má búast við vísitöluhækkun á því eins og öðru.

 

Við erum enn og aftur orðnar gríðarlega spenntar fyrir því að halda loksins þetta mót.

Kvennakór Reykjavíkur er 30 ára og Gígjan 20 ára á árinu 2023 og má því segja að landsmót Gígjunnar 2023 verði nokkurs konar afmælishátíð okkar allra og við hlökkum svo til að hitta ykkur :)

 

Fh. Landsmótsnefndar

Kolbrun H..

bottom of page