
Landsmót íslenskra kvennakóra Reykjavík 4.-6. maí 2023
Hér að neðan er tengill á allar upplýsingar varðandi landsmótið 2023

LANDSMÓT ÍSLENSKRA KVENNAKÓRA
HALDIÐ Í REYKJAVÍK Í MAÍ 2020
Ellefta landsmót Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra verður haldið dagana 7.-10. maí 2020 í Reykjavík.
Það er Kvennakór Reykjavíkur sem sér um skipulagningu mótsins og býður kórkonur hjartanlega velkomnar í höfuðborgina.
Kvennakór Reykjavíkur hefur hafið undirbúning af fullum krafti og má segja að hann hafi staðið yfir frá því í rútunni á leiðinni heim eftir frábært landsmót á Ísafirði vorið 2017.
Markmið kórkvenna Kvennakórs Reykjavíkur eru að allar konur sem taka þátt í mótinu, njóti hverrar stundar sem allra best og að það náist að skapa þá frábæru stemmingu, sem landsmótin fram til þessa hafa náð fram, í Reykjavík, þrátt fyrir stærð höfuðborgarinnar.
Við erum orðnar gríðarlega spenntar og hlökkum til að sjá ykkur
Munið myllumerki mótsins #syngjandivor2020
Heimasíða mótsins er hér: http://kvennakorinn.is/landsmot-2020/
Facebooksíða mótsins er hér: https://www.facebook.com/landsmot2020/
Nánari upplýsingar munu koma þegar nær dregur


Landsmót á Ísafirði 2017
Landsmótsnefnd skipa:
Hildur Halldórsdóttir, Pernilla Rein og Þuríður Katrín Vilmundardóttir.
Gistipláss á Ísafirði og nágrenni
26. janúar 2015
Hér má skoða samantekt um gistipláss á Ísafirði og nágrenni. Athugið að ekki fengust svör frá öllum aðilum þannig að samantektin er ekki tæmandi.
Gistipláss
Dagsetning landsmóts íslenskra kvennakóra á Ísafirði 2017
26. janúar 2015
Dagsetningar mótsins eru: 11. - 14.maí 2017.
Netfang landsmóts íslenskra kvennakóra á Ísafirði 2017
26. janúar 2015
Stofnað hefur verið netfang vegna landsmóts íslenskra kvennakóra á Ísafirði 2017. Vinsamlega sendið allar fyrirspurnir og erindi vegna landsmótsins á þetta netfang: landsmot2017@gmail.com
Kvennakór Ísafjarðar hefur skipað í undirbúningsnefnd fyrir landsmótið
26. október 2014
Undirbúningsnefndina skipa:
Hildur Halldórsdóttir
Pernilla Rein
Þuríður Katrín Vilmundardóttir
Tíunda landsmót íslenskra kvennakóra verður haldið á Ísafirði 2017
26. október 2014
Undirbúningsvinna við landsmótið hófst strax í vor og sér Kvennakór Ísafjarðar um alla skipulagningu að þessu sinni.
Yfirlit yfir landsmót Gígjunnar:
1. 1992 Kvennakórinn Lissý
2. 1995 Kvennakór Reykjavíkur
3. 1997 Freyjukórinn í Borgarfirði
4. 1999 Kvennakór Siglufjarðar
5. 2002 Kvennakór Suðurnesja
6. 2005 Kvennakór Hafnarfjarðar
7. 2008 Kvennakór Hornafjarðar
8. 2011 Jórukórinn á Selfossi
9. 2014 Kvennakór Akureyrar
10. 2017 Kvennakór Ísafjarðar
Allar nánari upplýsingar um landsmótið veitir Kvennakór Ísafjarðar.




Landsmót á Akureyri 2014
Landsmótsnefnd skipa:
Snæfríð Egilson, Anna Breiðfjörð Sigurðardóttir og Hólmfríður Þorsteinsdóttir.
Kveðja frá Kvennakór Garðabæjar
17. maí 2014
Kæru söngsystur í Kvennakór Akureyrar
Bestu þakkir fyrir landsmótshelgina og þetta stórkostlega kvennakóralandsmót.
Það er aðdáunarvert hversu vel ykkur tókst að skipuleggja alla liði mótsins og halda vel tímaplani og enginn þarf að efast um hversu brjálæðislega mikil vinna þetta hefur verið.
Við í Kvennakór Garðabæjar viljum koma á framfæri til ykkar aðdáun okkar á landsmótinu öllu í heild sinni; glæsilegum smiðjustjórum og öðru tónlsitarfólki, aðstöðu til æfinga og síðast en ekki síst húsakynnin í Hofi. Það var auðvitað alveg einstök upplifun að fá tækifæri til að syngja í þessu stórglæsilega tónlistarhúsi ykkar Akureyringa og við þökkum ykkur kærlega fyrir það og óskum ykkur til hamingju með húsið.
Hátíðarkvöldverðurinn var ótrúlega vel heppnaður og veislustjórinn hún Hildur Bolladóttir fór algjörlega á kostum, enda lagði hún skemmtilega út frá systur sinni, Jónu Hrönn Bolladóttur, sem er einn presta Garðbæinga og kona sem við þekkjum vel af góðu í gegnum samstarf okkar og Vídalínskirkju. Þannig að það var auðvitað auka krydd í grínið að þekkja vel til prests :-)
Það var mögnuð upplifun að standa á stóra sviðinu í Hofi og syngja sameiginlegu lögin undir stjórn Guðmundar Óla með öllum þessum sjöhundruð konum og strengjasveitinni; eiginlega vart hægt að lýsa þeirri tilfinningu.
Það fór engin svöng eða svelt frá höfuðstað norðurlands á sunnudagskvöldið því allur sá matur og drykkur sem í okkur var borinn allan daginn alla dagana var algjörlega til fyrirmyndar og þið megið bera Bautanum okkar bestu þakkir fyrir góðan mat.
Kæru vinkonur, bestu þakkir fyrir okkur og hvílið ykkur nú vel eftir þetta allt saman.
Kveðja frá Kvennakór Garðabæjar

Kveðja frá Kvennakór Akureyrar að afloknu landsmóti
16. maí 2014
Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra, stendur fyrir landsmótum á þriggja ára fresti. Helgina 9.-11. maí 2014 var níunda landsmótið haldið á Akureyri. Kvennakór Akureyrar fékk það hlutverk fyrir þremur árum á Selfossi að sjá um skipulagningu og framkvæmd þessa móts. Tuttugu kvennakórar víðsvegar að af landinu komu til þátttöku og einn gestakór, Vox Humana kom frá Mandal í Noregi. Það voru því á áttunda hundrað konur sem settu sterkan svip á bæjarlífið á Akureyri þessa helgi og söngurinn ómaði um bæinn.
Mótið var sett á föstudegi í Menningarhúsinu Hofi en að afloknum kvöldverði í Íþróttahöllinni hélt allur skarinn niður í kirkjutröppur þar sem sungið var ljóðið Akureyri og norðrið fagra eftir Stefán Vilhjálmsson við lag Jóns Ásgeirssonar við Maístjörnuna. Að því loknu var haldið í miðbæinn þar sem nemendur úr Tónlistarskólanum skemmtu með söng og spili. Næst var safnast saman í Skátagili þar sem Anna Richardsdóttir framdi einn af sínum frægu gjörningum fyrir landsmótskonurnar. Þá var komið að einu atriðinu enn í þessari ferð um miðbæinn, gangan flæddi niður að Hofi, konurnar mynduðu hring um Hof, reyndar var hringurinn tvöfaldur og svo var Hofið umfaðmað af öllum þessum konum. Þar var svo dvalið um stund við veitingar og söng.
Á laugardeginum tók alvaran við. Unnið var í sex söngsmiðjum, sem hver hafði sitt þema með þremur lögum og dreifðust smiðjurnar víðs vegar um bæinn. Þar blönduðust þá nokkrir kórar saman í hverja smiðju og var fjöldinn í hverri smiðju um og yfir 100 manns. Við tóku þrotlausar æfingar ýmist í smiðjunum eða þá að þær sameinuðust í einn stóran kór sem æfði fjögur lög.
Á laugardeginum var gert hlé á æfingum og þá voru haldnir tónleikar bæði í Hamraborg og í Hömrum í Hofi þar sem hver þátttökukór flutti nokkur lög af sínu eigin prógrammi.
Um kvöldið var hátíðarkvöldverður í Íþróttahöllinni þar sem sr. Hildur Eir stjórnaði veislunni af sinni alkunnu snilld, Vox Humana frá Noregi söng fyrir hátíðargesti og voru hreint frábærar. Óskar Pétursson og Snorri Guðvarðsson skemmtu og hljómsveitin Einn og sjötíu lék fyrir dansi. Af og til var svo brugðið upp útsendingu frá Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og líklega hefur þetta verið stærsta Eurovision-partý landsins.
Á sunnudeginum hófust æfingar kl. 9 og áfram haldið með æfingar í söngsmiðjum og í sameiginlegum kór. Afraksturinn var svo fluttur í Hamraborginni í Hofi kl. 15:00.
Þar komu fram:
-
Gígjusmiðja, stjórnandi Sigrún Magna Þórsteinsdóttir;
-
Madrigalasmiðja, stjórnandi Michael Jón Clarke;
-
Norræn kvennakóralög, stjórnandi Ingibjörg Guðjónsdóttir;
-
Rokksmiðja, stjórnandi Sigríður Eyþórsdóttir;
-
Spunasmiðja, stjórnandi Eyþór Ingi Jónsson;
-
Þjóðlagasmiðja, stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.
Sameiginlegum kór með 700 konum stjórnaði Guðmundur Óli Gunnarsson, sem einnig stjórnaði hljómsveit skipaðri félögum úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, sem og nemendum og kennurum úr Tónlistarskólanum á Akureyri. Fyrir hvert landsmót er samið við tónskáld um að semja sérstakt landsmótslag. Að þessu sinni varð Hugi Guðmundsson tónskáld fyrir valinu og var lag hans við texta Jakobínu Sigurðardóttur, Vor í Garði frumflutt á tónleikunum.
Að afloknum vel heppnuðum hátíðartónleikum voru mótsslit þar sem Una Þórey formaður Kvennakórs Akureyrar þakkaði mótsgestum fyrir komuna og mótsstjóri Margrét Bóasdóttir, stjórnendur og þátttökukórar fengu þakklætisvott fyrir afar vel unnin og vönduð störf. Formaður norska gestakórsins ávarpaði samkomuna á íslensku og þakkaði móttökurnar. Einnig fengu þær Snæfríð, Anna og Hólmfríður í landsmótsnefndinni verðskuldaðar þakkir fyrir frábært skipulag og alla yfirumsjón með mótinu. Formaður Gígjunnar, Þórhildur G. Kristjánsdóttir, þakkaði Kvennakór Akureyrar fyrir mótshaldið og mótttökurnar og afhenti síðan Kvennakór Ísafjarðar boltann og næsta landsmót íslenskra kvennakóra verður því haldið á Ísafirði vorið 2017. Að þessu loknu um kl. 18:00 var boðið upp á léttar veitingar og hélt síðan hver til síns heima um langan eða skamman veg.
Kvennakór Akureyrar með Daníel Þorsteinsson í broddi fylkingar, þakkar kærlega og af öllu hjarta öllum sem tóku á einhvern hátt þátt í því að gera þetta landsmót sem veglegast.
Bautanum á Akureyri viljum við þakka fyrir dásamlegan mat alla helgina og héðan fór enginn svangur. Starfsfólk Hofs fær einnig okkar innilegustu þakkir fyrir frábæra þjónustu og aðstoð og það var mikil upplifun fyrir kórkonur að fá að syngja í þessu flotta menningarhúsi. Kórkonur voru myndaðar í bak og fyrir alla helgina og heiðurinn að þeim myndum eiga þær ÁLFkonur Linda Ólafsdóttir og Helga Gunnlaugsdóttir.
Mótsstjóra og þátttökukórum, þá sérstaklega Kvennakórnum Sölku á Dalvík, er þakkað fyrir þeirra hlut til að gera þetta landsmót að skemmtilegum, litríkum og gefandi viðburði. Kórstjórum, söngsmiðjustjórum og hljóðfæraleikurum er einnig þakkað fyrir dásamlega samveru um helgina.
Minningin um ykkur öll og frábæra söngveislu lifir!


Mótsblað og tónleikaskrár
7. maí 2014
Mótsblað landsmótsins er komið út og fá mótsgestir það afhent við komuna á landsmótið.
Hægt er að skoða það á pdf formi og einnig má nálgast tónleikaskrár fyrir tónleika landsmótsins á pdf formi:
Mótsblað Landsmótsins á Akureyri
Tónleikar kóra laugardaginn 10.maí 2014 Hátíðartónleikar sunnudaginn 11.maí 2014

Lokapistill vegna landsmóts 7. maí 2014
Kæru kórsystur
Nú eru bara nokkrir dagar í landsmótið og við erum orðnar mjög spenntar að fá ykkur allar hingað til Akureyrar og hlökkum til að eyða næstu helgi með ykkur í söng og gleði.
Á móttökunni í Hofi á föstudaginn munu tengiliðir kóranna taka á móti ykkur og vera ykkur innan handar við að sýna ykkur Hof og finna aðstöðuna ykkar þar.
Söngsmiðjurnar eru á fimm stöðum í bænum. Skipulagðar ferðir verða frá Hofi (rokk- og þjóðlagasmiðja) og Skipagötu (madrigalasmiðja) strax eftir söngsmiðjurnar báða dagana í hádegisverð í Íþróttahöllinni. Best væri að nýta þær rútur sem kórarnir koma á norður til þessara flutninga. Því biðjum við ykkur sem koma með rútu að hafa samband við okkur sem fyrst.
Minnið konurnar ykkar á hagnýt atriði eins og að;
-
koma með kórbúningana
-
muna eftir og merkja vel söngheftin sín
-
vera með vatnsflösku á sér,
-
ekki vera með verðmæti í Hofi þar sem öll aðstaða er opin.
Óvissuferðin verður innan bæjarmarka Akureyrar og utandyra að mestu leyti. Gott er að hafa með sér hlýjan fatnað og góða skó og vonumst við til að sem flestar taki þátt í henni. Þetta verður svolítið rölt, þó ekki langt, en það væri afar gott að vita ef einhverjar þurfa að láta keyra sig á milli.
Ekki má gleyma galakjólnum / partýdressinu fyrir hátíðarkvöldverðinn en einnig verður hægt að koma við í miðbæ Akureyrar og á Glerártorgi og versla sér inn fyrir kvöldið.
Upplýsingar um landsmótið eru komnar inn á heimasíðu landsmótsins á www.kvak.is og á www.gigjan.is.
Þar má einnig finna dagskrána, tónleikaskrá fyrir bæði laugardags- og sunnudagstónleikana og skiptingu kóranna á tónleikunum í Hofi.
Laugardaginn 10. maí verða tónleikar kóranna og þá er opið hús fyrir gesti og gangandi og þið kæru kórkonur getið notið þess að hlusta hver á aðra bæði í Hamraborginni og í Hömrum.
Sunnudaginn 11. maí verða hátíðartónleikarnir.
Þetta verður sannkölluð tónlistarveisla og aldrei hafa svo margar konur stigið á svið í Hamraborginni. Hvetjum við ykkur allar til að auglýsa þessa viðburði vel þannig að við fyllum Menningarhúsið Hof af gestum.
Matseðlar helgarinnar eru inni á heimasíðunni og höfum við kappkostað að hafa sem fjölbreyttastan mat þannig að allir finni eitthvað við sitt hæfi. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef einhverjar séróskir eru vegna ofnæmis eða annars.
Dagskráin fyrir mótið er einnig í mótsblaðinu sem allar kórkonur fá við komu til Akureyrar á föstudaginn. Þar verður einnig tónleikaskrá mótsins.
Gangi ykkur öllum vel í ykkar undirbúningi fyrir landsmótið og við hittumst hressar og kátar og syngjandi glaðar í Menningarhúsinu Hofi á föstudaginn.
Kær kveðja frá Kvennakór Akureyrar

Dagskrá Landsmóts kvennakóra 2014
27. apríl 2014
Föstudagurinn 9. maí
15:00 – 16:00 – Móttaka í Menningarhúsinu Hofi - afhending mótsgagna
16:00 – 17:30 – Setning landsmóts og sameiginleg æfing í Menningarhúsinu Hofi, Hamraborg17:30 – 18:30 -
Frjáls tími18:30 – 19:00 –
Fundur Gígjunnar í Íþróttahöll19:00 – 20:00 –
Kvöldverður í Íþróttahöll20:00 – 23:00 –
ÓvissuferðLaugardagurinn 10. maí
08:45 – 11:15 – Söngsmiðjur
-
Gígjusmiðja í Brekkuskóla
-
Madrigalasmiðja í sal Einingar Iðju, Skipagötu 14
-
Norræn kvennakóralög í sal Öldrunarheimilisins Hlíð
-
Rokksmiðja í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi
-
Spunasmiðja Íþróttahöllinni
-
Þjóðlagasmiðja í Hömrum í Menningarhúsinu Hofi
11:30 – 12:00 –
Frjáls tími11:30 – 12:15 –
Fundir kórstjóra og formanna í Brekkuskóla
Fyrirlestur fyrir kórstjóra: Sigríður Eyþórsdóttir heldur erindi „Gleði og nýsköpun í starfi kórstjóra – nokkrar hugmyndir og vangaveltur“.
11:30 – 12:30 – Hádegisverður í Íþróttahöll
12:30 – 13:30 – Frjáls tími
13:30 – 14:30 – Sameiginleg æfing í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi
14:30 – 15:30 – Undirbúningur fyrir tónleika
15:30 – 17:30 – Tónleikar kóranna í Hamraborg og Hömrum í Menningarhúsinu Hofi
17:30 – 19:30 – Frjáls tími
19:30 – 00:00 – Hátíðarkvöldverður og dansleikur í Íþróttahöll
Sunnudagurinn 11. maí
09:00 – 11:15 – Söngsmiðjur
11:15 – 12:15 – Hádegisverður í Íþróttahöll
12:30 – 14:00 – Sameiginleg æfing í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi
14:00 – 15:00 – Undirbúningur fyrir tónleika
15:00 – 16:30 – Hátíðartónleikar í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi
16:30 – 17:30 – Kveðjukaffi og mótsslit í Menningarhúsinu Hofi

Tónleikar kóranna laugardaginn 10. maí kl. 15:30 í Menningarhúsinu Hofi
27. apríl 2014
Hamraborg
Kvennakór Hornafjarðar Léttsveit Reykjavíkur Jórukórinn, Selfossi Cantabile, Reykjavík Kvennakór Reykjavíkur Kvennakórinn Ljósbrá, Hellu Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur Kvennakór Hafnarfjarðar Kvennakór Kópavogs Kvennakór Akureyrar
Hamrar
Salka Kvennakór, Dalvík Freyjukórinn, Borgarfirði Kvennakórinn Ymur, Akranesi Kvennakór Garðabæjar Heklurnar, Mosfellsbæ Kyrjurnar, Reykjavík Kvennakórinn Norðurljós, Hólmavík Kvennakórinn Seljurnar, Reykjavík Kvennakór Ísafjarðar Vox Humana, Noregi

Matseðlar á Landsmóti íslenskra kvennakóra á Akureyri 9. - 11. maí 2014
27. apríl 2014
Föstudagur 9. maí
Léttur kvöldverður í Íþróttahöllinni á hlaðborðum
Grænmetiseggjanúðlur, ostbakaðir sjávarréttir og grillsteiktar kjúklingabringur bbq. borið fram með fersku blönduðu salati, steiktum kartöfluteningum, rótargrænmeti og sveppasósuLaugardagur
10. maí
Hádegisverður í Íþróttahöllinni á hlaðborðum
Ostbakaður pastaréttur með kjúkling og grænmeti í rjómasósu, steikt grænmetishrísgrjón með sjávarfangi, ferskt blandað salat, minestrone súpa, brauð og smjör
Hátíðarkvöldverður 10. maí
Forréttur
Glóðað crostini með graflaxtartar, djúpsteiktur humarhali thepura og marineraðar rækjur í chilisósu borið fram með blönduðu salati og smjördeigsbakstri
Aðalréttur
Grillsteiktur lambaframhryggur, kryddaður blóðbergi borinn fram með steiktu grænmeti gufusoðnu spergilkáli, hazzelback kartöflu portvínssósu
Desert
Fantasía
Ekta heimalöguð tíramisúterta borin fram með sultuðum berjum, þeyttum rjóma og skrautbakstri
Sunnudagur 11. maí
Hádegisverður í Íþróttahöllinni
Grænmetislasagne, risottó með kjúkling og grænmeti, ferskt blandað salat, humarsúpa með sjávarfangi, brauð og smjör



Landsmót Gígjunnar Selfossi
2011

Landsmótsnefnd skipa:
Kolbrún Káradóttir, Halla Baldursdóttir og Petra Sigurðardóttir.
Landsmót 2011 - þakkir frá stjórn Gígjunnar
Landsmót íslenskra kvennakóra var haldið á Selfossi dagana 29. apríl - 1. maí sl. og var það fjölmennasta mótið til þessa. Alls hafa 8 landsmót verið haldin en fyrsta mótið fór fram í Ýdölum árið 1992. Jórukórinn á Selfossi átti veg og vanda að allri skipulagningu og framkvæmd mótsins að þessu sinn og tókst það alveg hreint glimrandi vel. Tímasetningar gengu vel upp og ótrúlegt hversu fljótt gekk að gefa öllum þessum hóp að borða, allt gekk snurðulaust og fljótt fyrir sig.
Það er að ýmsu að huga þegar haldið er landsmót af þessari stærðargráðu og þær Jórukonur, með landsmótsnefndina skipaða þeim Petru Sigurðardóttur, Kolbrúnu Káradóttur og Höllu Baldursdóttur í fararbroddi, stóðu sig frábærlega í þeirri vinnu.Þátttakendur mættu til leiks síðdegis föstudaginn 29. apríl, en alls voru 23 kórar skráðir á mótið. Eftir að mótsgögn höfðu verið afhent og kvöldverður snæddur var mótið formlega sett og mótsstjórinn kynntur, en það var Margrét Bóasdóttir sem tók það starf að sér og stjórnaði hún mótinu af mikilli röggsemi enda margreynd á því sviði. Félagar úr kvennakórnum Vox feminae fluttu síðan erindi um gildi þess að varðveita heimildir fyrir kvennakóra og kynntu ljósmyndabókina „da capo“ sem kórinn gaf út í tilefni af 15 ára afmæli kórsins.
Að því loknu drifu mótsgestir, sem töldu yfir 600 konur og nokkra karla, sig af stað í 11 rútum sem héldu með allan hópinn í óvissuferð og þurfti lögreglufylgd til að koma allri lestinni út úr bænum. Bjarni Harðarson sá um leiðsögn í ferðinni af mikilli snilld og sagði margar skemmtilegar sögur af svæðinu og uppskar mikil hlátrasköll fyrir. Ekið var sem leið lá í Grímsnesið og að Kerinu þar sem makar Jórukvenna buðu upp á mjöð til að væta kverkarnar. Hófust síðan tónleikar í Kerinu þar sem Jóhann Stefánsson trompetleikari spilaði nokkur lög og Halla Dröfn Jónsdóttir sópransöngkona tók síðan við og söng þar sem hún stóð um borð í báti úti á vatninu. Heillaði hún alla viðstadda með sinni fögru rödd. Á meðan hún söng sýndu eldgleypar úr hjálparsveitinni Tintron í Grímsnesi listir sínar. Má með sanni segja að þetta hafi verið ógleymanleg upplifun og hljómburðurinn í Kerinu ótrúlegur.
Síðan var haldið áfram og stefnan tekin á Úlfljótsvatn. Þar biðu hópsins léttar og ljúffengar veitingar í skála á svæðinu. Fyrir utan logaði varðeldur og þar var mættur söngvarinn Magnús Kjartan Eyjólfsson sem spilaði á gítar og söng við góðar undirtektir þrátt fyrir rigningu. Hafði hann á orði að aldrei áður hefði verið tekið svona vel undir hjá honum með rödduðum söng. Magnús var svo samferða hópnum til Selfoss og hélt söngnum áfram og tóku konurnar að sjálfsögðu vel undir. Þess má geta að Magnús er söngvari Stuðlabandsins sem spilaði síðan fyrir dansi á laugardagskvöldinu.
Að morgni laugardags mættu svo allar konurnar á æfingu í Iðu, íþróttahúsi Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem sameiginlegu lögin voru æfð og eftir hádegi var skipt í hópa þar sem hver hópur æfði sín lög sem átti að flytja á hátíðartónleikum í Iðu á sunnudeginum. Þess á milli var hádegisverður og haldinn var félagsfundur Gígjunnar, formannafundur og kórstjórafundur. Síðdegis voru haldnir tvennir tónleikar, aðrir í Selfosskirkju en hinir í Iðu, þar sem þátttökukórar fluttu tvö til þrjú lög hver. Var gaman að sjá hversu marga flotta kvennakóra við eigum hér á Íslandi og greinilega mikil gróska í kvennakórastarfi enda hefur fjöldi þeirra aukist töluvert á undanförnum árum. Heiðursgestir tónleikanna voru forsetahjónin, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, en þau hlýddu á kórana sem sungu í Iðu fyrir hlé en í Selfosskirkju eftir hlé.
Eftir tónleikana höfðu konur tíma til að skipta um föt og hafa sig til fyrir hátíðarkvöldverð sem haldinn var í íþróttahúsi Sólvallaskóla. Þar gengu gestir inn rauðan dregil og tóku Jórukonur á móti þeim í flottum diskódressum og buðu upp á fordrykk. Dagskráin hófst síðan á stórskemmtilegu atriði þeirra Jóra þar sem þær sungu lag Páls Óskars, „Það geta ekki allir verið gordjöss“ og sýndu flotta diskódanstakta við fagnaðarlæti áhorfenda. Síðan var borinn fram glæsilegur kvöldverður sem makar og aðrir aðstandendur Jórukvenna báru fram af mikilli fagmennsku. Veislustjóri kvöldsins eða kynnir eins og hún vildi frekar hafa það, var Ingveldur Eiríksdóttir, prestsdóttir frá Þingvöllum og grunnskólakennari, og stýrði hún borðhaldi og skemmtiatriðum kvöldsins á léttu nótunum. Leikarar frá Leikfélagi Selfoss sýndu brot úr frumsömdu leikriti sem heitir „Hið dularfulla hvarf Hollvinafélagsins“ og síðan tróð upp ungur söngvari, Daníel Haukur Arnarsson og tókst honum að heilla flestar ef ekki allar konur í salnum upp úr skónum með frábærum söng. Það er greinilegt að það er nóg til af hæfileikaríku ungu fólki á Selfossi og nágrenni. Að lokum lék hljómsveitin Stuðlabandið frá Selfossi fyrir dansi og fóru þeir létt með að fylla dansgólfið og var dansað og sungið af mikilli innlifun fram á nótt. Ung söngkona frá Selfossi, Jóhanna Ómarsdóttir, söng einnig nokkur lög með hljómsveitinni, efnileg söngkona þar á ferð.
Á sunnudagsmorgni mættu konur á æfingar í vinnuhópum og var ótrúlegt hversu vel söngurinn hljómaði eftir fjörið kvöldið áður. Eftir hádegi var síðan lokaæfing á sameiginlegu lögunum og kl. 15 hófst síðan hápunktur mótsins, sjálfir hátíðartónleikarnir. Fyrst komu vinnuhóparnir fimm og fluttu sín lög en hver hópur hafði sitt þema.
Fyrsti hópurinn flutti íslensk dægurlög undir stjórn Helenu R. Káradóttur en hún er stjórnandi Jórukórsins. Um hljóðfæraleik sáu Þórlaug Bjarnadóttir, Jóhann Stefánsson og Smári Kristjánsson.
Næsti hópur flutti Björgvinslög, þ.e. lög eftir Björgvin Þ. Valdimarsson og stjórnaði hann hópnum sjálfur.
Þriðji hópurinn skellti sér „Í sveiflu með Kristjönu“ en það var Kristjana Stefánsdóttir söngkona sem stjórnaði þeim hóp og söng einnig með. Hljóðfæraleikarar voru Vignir Þór Stefánsson, Smári Kristjánsson og Gunnar Jónsson.
Fjórði hópurinn söng Flóaperlur, en það voru lög eftir tónskáld úr Flóanum. Stjórnandi hópsins var Eyrún Jónasdóttir sem er stjórnandi Kvennakórsins Ljósbrár. Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Jóhann Stefánsson og Smári Kristjánsson sáu um hljóðfæraleik.
Síðasti hópurinn söng óperukóra og var það Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona sem stjórnaði þeim. Antonia Hevesi lék með á píanó. Að lokum sameinuðust allar konurnar, rúmlega 600 talsins, í einn risastóran kór sem flutti nokkur lög undir stjórn Helenu R. Káradóttur og Vignis Þórs Stefánssonar við undirleik Stórsveitar Suðurlands. Bar þar hæst frumflutningur á landsmótslaginu 2011, „Haustkvöld“ eftir Örlyg Benediktsson við texta Brynju Bjarnadóttur. Þetta voru stórglæsilegir tónleikar sem fóru fram í Iðu fyrir troðfullu húsi og var mögnuð upplifun að syngja í svo stórum kór.
Til þess að breyta þessu íþróttahúsi í tónleikahús þurfti hljóðkerfi og fleira og sá fyrirtækið EB kerfi á Selfossi um þá hlið og voru þar greinilega fagmenn á ferð. Eftir tónleika var haldið yfir í Sólvallaskóla þar sem haldið var kveðjukaffi.
Það voru síðan þreyttar en alsælar konur sem héldu til síns heima að loknu frábæru og ógleymanlegu landsmóti.
Stjórn Gígjunnar óskar Jórukórnum til hamingju með þetta stórglæsilega landsmót og þakkar þeim og þeirra fólki á Selfossi fyrir frábært starf við skipulagningu og framkvæmd mótsins og fyrir frábærar móttökur.
Kvennakór Akureyrar mun halda næsta landsmót á Akureyri árið 2014 og eflaust bíða margar konur spenntar eftir því.
Kæru landsmótsgestir
Jórukórinn þakkar ykkur öllum kærlega fyrir síðast og einnig þökkum við allar þær hlýju kveðjur sem við höfum fengið sendar eftir mótið, þær ylja svo sannarlega. Við erum alsælar með hvernig til tókst og einnig stoltar af mótinu í heild sinni. Það var ógleymanleg upplifun fyrir okkur Jórur að sjá margra mánaða vinnu skila sér í þessu landsmóti. Minningin um þessa helgi mun ávallt fylgja okkur.
Það eru í vinnslu hljóðupptökur af tónleikunum og einnig mynddiskur með ýmsu efni frá mótinu. Þessir diskar verða sendir út um leið og þeir eru tilbúnir.
Við þökkum ykkur öllum fyrir að hafa deilt þessum vordögum með okkur hér á Selfossi.Við förum nú syngjandi sælar út í sumarið og sólina.
Nú er bara að stefna á Akureyri vorið 2014 - Jórukórinn er allavega búinn að bóka á Hótel KEA ;-)
Kærar kveðjur frá Jórukórnum Selfossi

Heilir og sælir kæru landsmótsgestir
(22. apríl 2011)
Nú er bara vika í landsmótið okkar og því er tímabært að huga að því hverju má alls ekki gleyma að pakka niður í töskuna. Fyrst skal nefna kórdressið, síðan er það vinnuheftið góða með öllum nótum mótsins. Fyrir óvissuferðina er nauðsynlegt að hafa hlýjan útivistarfatnað og góða skó og hvetjum við alla til að mæta í hana – því við Jórur lofum frábærri ferð. Partýdress fyrir laugardagskvöldið er gott að hafa með en því má einnig redda hér á Selfossi í hinum mörgu verslunum sem hér eru. Að sjálfsögðu verður góða skapið með í för og einnig verður nóg af því hér á staðnum.
Á heimasíðu Jórukórsins www.jorukorinn.is og á gigjan.is eru allar upplýsingar um mótið. Þar er t.d. dagskrá mótsins, tónleikaskrá og skipting kóra á milli tónleikastaða á laugardeginum, endilega hvetjið ykkar fólk til þess að taka sér bíltúr hingað á Selfoss þessa helgi og mæta á flotta tónleika. Einnig er þar matseðill mótsins og ef einhverjar sér óskir eru með matinn á hátíðarkvöldverðinum þá munum við reyna að koma til móts við þær. Inni á heimasíðu Jórukórsins er einnig hægt að hlusta á landsmótslagið, bæði með og án stórsveitar og einnig hverja rödd fyrir sig.
Skráningu á mótið er að ljúka og eru tæplega 600 konur skráðar til leiks og því er þetta stærsta landsmót sem haldið hefur verið.
Við hittumst því hressar og kátar næsta föstudag og leggjumst allar á bæn með það að veðrið lagist eitthvað og vorið fari að koma .
Bestu kveðjur frá spenntum Jórum

DAGSKRÁ 8. LANDSMÓTS KVENNAKÓRA Á SELFOSSI 29. APRÍL -1. MAÍ 2011
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL
17.30 - 18.30
Móttaka í Sólvallaskóla, afhending mótsgagna, kórar hitta tengiliði og fá búningsaðstöðu
18.30 - 20.00 Kvöldverður í Íþróttahúsi Sólvallaskóla (þar sem allar máltíðir verða)
Setning landsmótsins
Á söguslóð kvennakóra
Erindi frá Vox Feminae - Sigríður Anna Ellerup og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
20.00 - 23.00 Óvissuferð – farið frá Sólvallaskóla
LAUGARDAGUR 30. APRÍL
09.00 - 11.00 Sameiginleg æfing í Iðu (Íþróttahús Fjölbrautaskóla Suðurlands). Allir þátttakendur
11.00 - 11.30 Félagsfundur Gígjunnar í Iðu. Allir þátttakendur
11.30 - 12.30 Hádegisverður
12.30 -13.30 Frjáls tími
Kórstjórnendur funda í Iðu og formenn kóranna funda í Iðu
13.30 - 15.00 Æfing í vinnuhópum (nánari upplýsingar í mótsblaði)
15.00 - 15.15 Kaffi á æfingastöðunum
15.15 - 16.00 Frjáls tími, undirbúningur fyrir tónleika
16.00 - 17.30 Tónleikar kóranna í Iðu og Selfosskirkju
Sjá skiptingu milli tónleikastaða á www.jorukorinn.is og www.gigjan.is
17.30 - 19.30 Frjáls tími, undirbúningur fyrir kvöldið
19.30 - 01.00 Hátíðarkvöldverður og dansleikur í Íþróttahúsi Sólvallaskóla
SUNNUDAGUR 1. MAÍ
09.30 - 11.30 Æfing í vinnuhópum
11.30 - 12.30 Hádegisverður
12.30 - 14.00 Æfing í Iðu með Stórsveit Suðurlands. Allir þátttakendur
14.00 - 15.00 Undirbúningur fyrir tónleika
15.00 - 16.30 Hátíðartónleikar í Iðu
16.30 - 17.30 Kveðjukaffi í Íþróttahúsi Sólvallaskóla, móti slitið
Tónleikar kóra í Selfosskirkju og Iðu - skipting kóra
(19. apríl 2011)
Selfosskirkja kl 16.00
Uppsveitasystur Flúðum, Kvennakór Ísafjarðar, Heklurnar Mosfellsbæ,
Íslenski kvennakórinn í Kaupmannahöfn, Kvennakór Garðabæjar,
Kvennakórinn Norðurljós,
Kvennakórinn Ymur Akranesi, Salka kvennakór Dalvík, Kyrjukórinn Þorlákshöfn,
Vox feminae Reykjavík.
Iða kl. 16.00
Kyrjurnar Reykjavík, Freyjukórinn í Borgarfirði, Jórukórinn Selfossi,
Kvennakór Akureyrar, Kvennakór Hornafjarðar, Kvennakór Suðurnesja,
Kvennakór Hafnarfjarðar,
Kvennakórinn Ljósbrá Hellu, Kvennakórinn Seljurnar Reykjavík, Léttsveit Reykjavíkur.
Matseðill á landsmóti 2011
(24. apríl 2011)
Föstudagur 29.apríl
Kvöldverður
Rjómalöguð brocoli og blómkálssúpa, pastasalat, hrásalat og nýbakað brauð
Laugardagur 30.apríl
Hádegisverður
Lasagna, hrísgrjón, hrásalat og brauð.
Miðdegiskaffi
Kleinur, kanilsnúðar og kaffi
Hátíðarkvöldverður
Forréttur:
Rjómalöguð skógarsveppasúpa og nýbakað brauð
Aðalréttur:
Lambasteik, rösti kartöflur, rótargrænmeti og rósmarinsósu
Eftirréttur:
Súkkulaðikaka m/ Skógarberjablöndu og rjóma
Sunnudagur 1. Maí
Hádegisverður
Amerískar pönnukökur, eggjakökur, pylsur, hrásalat og brauð
Miðdegiskaffi
Hátíðarrjóma-marsipanterta og kaffi

Nýjar fréttir af Landsmótinu í vor
(2. mars 2011)
Um 600 konur hafa skráð sig á Landsmótið í vor og erum við í Jórukórnum alveg himinlifandi yfir þessari frábæru þátttöku. Skráðir eru 23 kórar víðsvegar að af landinu.
Búið er að skipta kórunum niður í vinnuhópa og vonum við að allir séu sáttir, en að sjálfsögðu komast ekki allir í þann hóp sem þeir völdu í fyrsta sæti. Ákveðið var að útbúa vinnuhefti með öllum nótum mótsins og eiga allir að vera búnir að fá það í hendur, ef svo er ekki endilega hafið þá samband við landsmótsnefndina.J
órukórinn hefur opnað nýja heimasíðu www.jorukorinn.is og hvetjum við ykkur til þess að skoða hana en þar eru ýmsar upplýsingar um Landsmótið og einnig um Jórukórinn. Fljótlega munum við gefa út dagskrá mótsins en hún verður með svipuðu sniði og síðustu mót. Mótsgjaldið liggur ekki alveg fyrir en það mun allavega ekki fara yfir 20 þús kr.
Á laugardeginum 30.apríl verða tónleikar þar sem flestir kórarnir syngja 2-3 lög einir og munum við fljótlega kalla eftir upplýsingum um hvaða lög það verða.
Bestu kveðjur frá Jórukórnum Selfossi
Eftirfarandi kórar hafa skráð sig á landsmótið Cantabile Reykjavík
Freyjukórinn í Borgarfirði
Heklurnar Mosfellsbæ
Ísl. Kvennakórinn í Kaupmannahöfn
Jórukórinn Selfossi
Kvennakór Akureyrar
Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Hafnarfjarðar
Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Ísafjarðar
Kvennakór Kópavogs
Kvennakór Suðurnesja
Kvennakórinn Norðurljós Hólmavík
Kvennakórinn Ljósbrá Hellu
Kvennakórinn Salka Dalvík
Kvennakórinn Seljur Reykjavík
Kvennakórinn Ymur Akranesi
Kyrjukórinn Þorlákshöfn
Kyrjurnar Reykjavík
Léttsveit Reykjavíkur
Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur
Uppsveitasystur Flúðum
Vox Feminae Reykjavík
Gleðilegt ár Gígjukonur
(11. janúar 2011)
Við í Jórukórnum á Selfossi sendum öllum kvennakórskonum í Gígjunni bestu óskir um heillaríkt ár og þökkum kærlega fyrir góð samskipti á liðnu ári.
Nú fer að styttast í Landsmótið okkar í vor og verður að segjast að við erum að verða virkilega spenntar. Það lítur vel út með þátttöku af öllu landinu og finnst okkur það mjög skemmtilegt.
Við viljum minna á að miðað er við að skráningu á mótið og greiðslu staðfestingargjalds sé lokið 15. janúar nk. Staðfestingargjaldið er 5.000 kr. á konu og óskum við eftir að greitt sé fyrir hvern kór í einni greiðslu. Reikningsnúmerið er 1169-26-1631, kennitalan 631097-3249 og netfangið er kolbrunka@gmail.com.
Mikilvægt er að fá skráninguna á réttum tíma svo við getum haldið áfram með skipulagningu mótsins og farið að gefa út hvert mótsgjaldið verður.
Meðfylgjandi er endanleg útgáfa af vinnuhópunum og gott væri að þeir kórar sem eiga eftir að senda upplýsingar um í hvaða vinnuhópi þeir vilja vera, geri það sem fyrst.
Ef einhverjar spurningar eru þá endilega sendið okkur póst.
Bestu kveðjur frá Jórunum á Selfossi

LANDSMÓT ÍSLENSKRA KVENNAKÓRA Á SELFOSSI
29. APRÍL – 1. MAÍ 2011
(23. nóvemberg 2011)
VINNUHÓPAR
-
Dægurlagahópur - Stjórnandi: Helena Káradóttir
Helena er frá Selfossi og hefur stjórnað Jórukórnum í mörg ár og hefur í gegnum tíðina útsett fjölda laga fyrir kórinn. Hún hefur þá einkum tekið fyrir íslensk dægurlög og verður hún hér með nokkur valin lög úr þeim geiranum.
Angel Lag og ljóð: KK
Þér við hlið Lag: Trausti Magnússon. Ljóð: Magnús Þ. Sigmundsson
Cyrano Lag: Hjálmar H. Ragnarsson
-
Björgvinshópur - Stjórnandi : Björgvin Þ. Valdimarsson
Selfyssingurinn Björgvin Þ. Valdimarsson er löngu landsþekktur fyrir lögin sín sem mörg hver hafa notið mikilla vinsælda eins og til dæmis Undir dalanna sól og Kveðja heimanað. Hann ætlar að stýra nokkrum lögum úr sinni smiðju sem hann samdi við ljóð Þorsteins Valdimarssonar.
Vöxtur – Vorlauf –
Fögnuður Andra á Hallormsstað
Signing
-
Í sveiflu með Kristjönu Stefáns - Stjórnandi: Kristjana Stefánsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir, djasssöngkona með meiru, er enn einn Selfyssingurinn sem við teflum fram. Hún ætlar hér að taka okkur í létta swing-þjálfun ásamt því að taka lagið sjálf með hópnum.
Einu sinni á ágústkvöldi Lag: Jón Múli Árnason. Ljóð: Jónas Árnason
Já svo sannarlega Lag: Lawrence. Ljóð: Þórarinn Eldjárn.
The Boy from New York City Lag og ljóð: John Taylor.
-
Flóaperlur - Stjórnandi: Eyrún Jónasdóttir stjórnandi Ljósbránna úr Rangárvallasýslu.
Hinn svo kallaði “Flói” er landsvæðið milli Þjórsár annars vegar og Hvítár/Ölfusár hins vegar. Mörg þjóðþekkt tónskáld hafa komið úr Flóanum og má þar nefna Pál Ísólfsson frá Stokkseyri og Sigfús Einarsson frá Eyrarbakka. Hér verða tekin fyrir tvö lög eftir þá í splunkunýjum raddsetningum fyrir kvennakór eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
Úr yngri deildinni tökum við svo lag eftir þriðja Flóamanninn; Ingólf Þórarinsson frá Selfossi og verður það Bahama sem flestir ættu kannast við.
Í dag skein sól Lag: Páll Ísólfsson. Ljóð: Davíð Stefánsson
Draumalandið Lag: Sigfús Einarsson. Ljóð: Jón Trausti
Bahama Lag og ljóð: Ingólfur Þórarinsson
-
Óperukórar - Stjórnandi: Elín Ósk Óskarsdóttir
Elín Ósk er ein fremsta söngkona landsins og hefur einnig getið sér gott orð sem kórstjóri hjá Óperukór Hafnafjarðar. Hún ætlar að leiða okkur inn á svið óperunnar og vinna með okkur tvo óperukóra úr jafn mörgum óperum.
O Pastorelle, Addio - úr Andrea Chénier, e. Giordano
Spunakórinn - úr Hollendingurinn fljúgandi, e. Wagner
-
Sameiginleg lög allra þátttakenda með Stórsveit Suðurlands
Við höfum fengið Stórsveit Suðurlands til liðs við okkur og mun hún leika með okkur í þessum sameiginlegu lögum allra þátttakenda mótsins. Stjórnandi stórsveitarinnar er Vignir Þór Stefánsson.
Time to Say Goodbye Lag og ljóð: Francesco Sartori, Lucio Quarantotto and Frank Peterson
Sumar konur Lag og ljóð: Bubbi Morthens
Vegir liggja til allra átta Lag: Sigfús Halldórsson. Ljóð: Indriði G. Þorsteinsson
Haustkvöld / Landsmótslagið 2011 Lag: Örlygur Benediktsson. Ljóð: Brynja Bjarnadóttir

Ágætu kvennakórar
(23. nóvember 2010)
Á aðalfundi Gígjunnar í október sl var Landsmótið á Selfossi kynnt fyrir fundargestum. Við vorum þar með stutt kynningarmyndband sem við höfum útbúið og einnig vorum við með upplýsingar um vinnuhópana og sameiginlegu lögin sem verða á mótinu. Það hefur dregist hjá okkur að senda þetta út því við þurftum að laga myndbandið aðeins en nú er það tilbúið og hér með fylgir tengill inn á þetta myndband. Upplýsingar um vinnuhópana fylgir með þessum pósti sem viðhengi. Þið skulið endilega skoða þetta vel og getið síðan einnig áframsent þetta á ykkur kórkonur.http://vimeo.com/16980171
Það lítur út fyrir mjög góða mætingu hingað á Selfoss næsta vor því margir kórar hafa látið vita að þeir ætla að mæta, en okkur langar samt að biðja alla þá sem ætla að koma að svara þessum pósti og senda eftirfarandi upplýsingar:
Hve margar konur mæta líklega frá kórnum.
Hvar kórinn er með gistingu.
Óskir um vinnuhópa, velja 3 vinnuhópa. 1. val - er sá vinnuhópur sem kórinn vill helst taka þátt í.2. val - er vinnuhópur sem er í öðru sæti hjá kórnum.3. val - er vinnuhópur sem er í þriðja sæti hjá kórnum.
Ekki er hægt að lofa því að allir komist í þann vinnuhóp sem er í 1. vali. Einnig er rétt að taka fram að ætlast er til að kórkonur verði búnar að æfa lögin fyrir vinnuhópana. Því er gert ráð fyrir að kórinn fari allur í sama vinnuhóp, nema þegar um er að ræða mjög stóran kór og einnig ef stjórnandi viðkomandi kórs treystir sér til þess að æfa fyrir fleiri en einn vinnuhóp.
Staðfestingargjaldið er 5.000 kr á konu og er óafturkræft, það þarf að greiða í síðasta lagi 15.janúar 2011.
Reikningsnúmerið er 1169-26-1631 og kt. 631097-3249.
Vinsamlegast sendið upplýsingar á netfangið kolbrunka@gmail.com þegar staðfestingargjaldið er greitt.
Mótsgjaldið er ekki komið á hreint en verður allavega innan við 20.000 kr.
Fljótlega eftir 15.janúar 2011 þegar viðkomandi kór hefur greitt staðfestingargjaldið verða nótur sendar út.
Við hlökkum til að heyra í ykkur
Bestu kveðjur frá Landsmótsnefndinni Selfossi

Landsmót Gígjunnar Hornafirði
2008
Hamingjuóskir og þakkir frá stjórn Gígjunnar
(13. maí 2008)
Þakkir frá stjórn Gígjunnar til allra Hornfirðinga
Það er engu líkara en að Kvennakór Hornafjarðar vinni við að halda landsmót svo frábærar voru þær í því hlutverki sínu. Öll skipulagning mótsins var mjög vel unnin og allar tímasetningar stóðust sem getur nú verið mjög flókið þegar svona mikið af fólki er samankomið á einum stað. Mótsstjórn var í höndum Bjargar Erlingsdóttur sem stóð sig með miklum ágætum og stjórnaði öllu mótinu af fagmennsku og röggsemi. Landsmótsnefndin þær; Erna Gísladóttir, Ingibjörg Ævarr Steinsdóttir og Lucia Óskarsdóttir báru hitann og þungann af undirbúningi og eiga þær einnig hrós skilið. Hægt er að lesa mjög skemmtileg skilaboð frá þeim á þessari síðu en þær voru duglegar við að koma upplýsingum um framvindu mála til aðildarkóranna. Hjartans þakkir Erna, Ingibjörg og Lucia þið voruð alveg frábærar. Tengiliðir kóranna fá einnig rós í hnappagatið en þeir voru ávallt til staðar og leystu öll mál sem upp komu fljótt og vel.
Hornfirðingar tóku mjög vel á móti öllum og var konum gjarnan boðið far á milli staða af bæjarbúum. Búðirnar voru opnar eftir hádegi á laugardeginum og sundlaugin breytti opnunartímanum fyrir okkur.
Makar kórkvenna Kvennakórs Hornafjarðar tóku mjög vel á móti okkur með varðeld, léttum veitingum og söng á föstudagskvöldið í fjallasölum Hoffells. Höfðu sett kertaljós útum allt í fjallinu og greinilega hætt lífi sínu og limum fyrir það fjallaklifur, en það bar árangur við heilluðumst gjörsamlega upp úr skónum. Veitingarnar voru heldur ekki af verri endanum kransakökubitar og jarðarber ásamt ísköldum bjór og léttvíni. Þeir þjónuðu okkur einnig til borðs á hátíðarkvöldverðinum á laugardagskvöldinu (dúlluðu við okkur) og dönsuðu meira að segja við okkur þegar þeir höfðu tíma á milli þjónustustarfa.
Heimatilbúin skemmtiatriði á laugardagskvöldinu og frábær hljómsveitin Kusk spilaði fyrir dansi. Í litlu bæjarfélagi þarf fólk oft að bregða sér í mörg hlutverk og til gamans má geta þess að hinn ungi og bráðhressi söngvari Kusks er einnig meðhjálpari í kirkjunni.
Bæjarstjórinn Hjalti Þór Vignisson var veislustjóri kvöldsins og fór á kostum.
Kórstjóri Kvennakórs Hornafjarðar á einnig hrós skilið hann Svavar Sigurðsson sem náði góðum hljóm í landsmótslaginu "Þegar sólin skín". Textinn er eftir Guðbjart Össurarson og lagið er eftir Þóru Marteinsdóttur, tónskáld. Það var afar ánægjulegt að hafa þau bæði viðstödd frumflutninginn og færir Gígjan þeim sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag.
Það er auðvitað aldrei hægt að gera tæmandi lista yfir alla sem lögðu hönd á plóginn til þess að þetta sjöunda landsmót Gígjunnar yrði eins glæsilegt og raun bar vitni. Það ríkti greinilega mikill samhugur á Hornafirði um að gera þetta landsmót sem allra glæsilegast og allir virtust leggjast á eitt og við þökkum ykkur öllum fyrir glæsilegar móttökur og frábært landsmót.
Stjórn Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra óskar Kvennakór Hornafjarðar hjartanlega til hamingju með glæsilegt landsmót og veit að hún talar fyrir hönd allra sem voru á mótinu – þetta var í alla staði frábært hjá ykkur, HÚRRA, HÚRRA, HÚRRA fyrir ykkur öllum.
Næsta landsmót Gígjunnar verður haldið á Selfossi árið 2011 og mun Jórukórinn á Selfossi sjá um undirbúninginn.
Bréf frá Kvennakór Hornafjarðar
(9. maí 2008)
Heilar og sælar söngsystur allar og þið sem voruð á landsmótinu, kærar þakkir fyrir síðast.
Við erum hamingjusamar og innilega þakklátar öllum þeim sem hafa sent okkur frábæra tölvupósta, ánægjulegar kveðjur og þakkir, hafið þið allar hjartans þakkir fyrir.
Það er einmitt hluti þess staðfestingar að mótið tókst vel, öll undirbúnings- og skipulags vinna hélt . Annar stór þáttur í því að svona vel til tókst voruð þið allar/öll í kórunum sem komuð hingað en það var alveg frábært að vera með ykkur.
Einnig það að okkar góðu makar lögðu allt annað frá sér til að ljá okkur lið í undirbúning og vinnu þessa helgi svo við gætum sjálfar verið með í því sem boðið var uppá. Þeir styðja okkur ætíð í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur, sem er nú ýmislegt bæði mögulegt og ómögulegt, og án þeirra vinnuframlags hefðum við svo sannarlega ekki staðið svo vel að vígi.
Við erum ekki aldeilis af baki dottnar, því vortónleikarnir okkar verða 14. maí, með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá, “að hætti Svavars” okkar frábæra kórstjóra. Þá er undirbúningur að hefjast fyrir þjóðakvöldið okkar á árlegri Humarhátið hér á Hornafirði sem er orðin fastur liður á þeirri merku hátíð og bara spennandi að sjá hvaða þema verður fyrir valinu í ár en það kemur ekki í ljós fyrr en gestir mæta í hús.
Verið hjartanlega velkomin á Humarhátíð, en eins og þið tókuð eftir sem komuð á landsmótið, að þá er bara örstutt að skjótast hingað til okkar á Hornafjörð.
Bestu kveðjurfrá stelpunum í Kvennakór Hornafjarðar og mökum
Hornafjarðarhnoð eftir Unni Sæmundsdóttir í Heklunum 4. maí 2008
Bréf frá Heklunum
Í hamingjukasti hér Heklur sér una
við Hornafjörðinn þær lögum út buna.
Þar konur af klakanum kyrja og kvaka
kátar á daginn, á nóttu samt vaka.
Og móttökur mætar sko meyjunum mættu
er makar af staðnum þær vökvuðu og kættu.
Þökkum við ykkur þá þjónustu góða
þyrftum þeim öllum í Mosó að bjóða.
Þið Hornfirsku konur jú hrós fáið líka
hélduð hér veislu með gestrisni slíka.
Skemmtun á sviði er seint hægt að toppa
er skutlur í gullbuxum byrjuðu að hoppa.
Skvísur svo skrölluðu skrokkinn vel hristu
á dansgólf sér skelltu og alveg sig misstu.
Um morgun samt mættu á æfingu, sungu
mikið sig rækstu en þöndu svo lungu.
Raddirnar ómuðu er rauluðum saman
rúmlega þrjúhundruð stelpur var gaman.
Tónleika tókst okkur allvel að klára
tónverk um sólskin er létt leikur bára.
(Höf. Unnur Sæmundsdóttir)
Með bestu kveðju og þakklæti til kvennakórs Hornafjarðar
og maka þeirra fyrir frábærar móttökur í einu og öllu.
Heklurnar kvennakór
Takk fyrir okkur Kvennakór Hornarfjarðar
(4. maí 2008)
Það voru glaðar og söngsaddar Hafnarfjarðarkonur sem renndu inn á plan Tónlistarskólans í Hafnarfirði rétt eftir ellefu á sunnudagskvöldið. Ferðin hafði gengið vel heim og einungis stoppað einu sinni en það var í Vík. Nóg var að gera fyrir staðarhaldara á veitingarstaðnum þar sem á undan okkur höfðu komið Reykjavíkurkonur og Jórukonur rétt sluppu inn áður en við hópuðumst inn á staðinn. Í rútunni var strax byrjað að rifja upp atburði helgarinnar og var mikið hlegið og strax var ljóst að minningar frá þessu 7. landsmóti kvennakóra myndu ekki þurrkast strax úr minni. Ævintýralegt föstudagskvöldið þar sem tindrandi bergið gnæfði yfir glöðum landsmótskonum þar sem þær gæddu sér á þeim guðaveigum sem Karlakór Kvennakórs Hornarfjarðar reiddi fram í ísilögðum kerrum. Og ekki er hægt að nefna þetta ævintýralega kvöld án þess að minnast á það þegar Karlakórinn Jökull kom syngjandi fram undan tindrandi berginu þarna undir jöklinum.
Á laugardag tók svo ekki síðra við. Söngur við allra hæfi einkenndi þetta landsmót. Það var mál okkar kvenna að það var mjög vel heppnað að hver kona fengi að velja sinn hóp. Það gerði það líka að verkum að konur kynntust betur. Tónleikar síðdegis og svo rífandi stuð á balli um kvöldið. Er hægt að biðja um betri skemmtun.
Áframhaldandi söngur á sunnudegi og mörgum að óvörum small þetta frábæra landsmótslag alveg saman á síðasta sprettinum. Þetta var algjör snilld og við segjum bara enn og aftur takk fyrir okkur Kvennakór Hornarfjarðar. Við erum strax farnar að hlakka til næsta landsmóts á Selfossi eftir þrjú ár.
Með kveðju,
Kvennakór Hafnarfjarðar
Dagskrá 7. Landsmóts íslenskra Kvennakóra á Hornafirði
Föstudagur 25. apríl
18.00 – 20.00 Matur til reiðu, móttaka og afhending gagna. Kórar hitta sína tengiliði.
19.30 Mótið sett.
20.00 Óvissuferð.
21.30- 22.00 Komið aftur í íþróttahús, sungið saman, hóparnir hittast.
Laugardagur 26. apríl
08.30 Kaffisopi í íþróttahúsi.
08.45 Félagsfundur Gígjunnar.
09.00 – 11.30 Vinnuhópar
11.30 Matur, fyrri hópur
12.00 Matur seinni hópur
12.30 Kórstjórnendur funda
Frjáls tími fyrir búðarráp og safnaskoðun
13.30- 15.00 Sameiginleg lög æfð og kaffihlé
Undirbúningur / fataskipti og púðra á sér nefið fyrir tónleika
16.00 Tónleikar kóranna í íþróttahúsi. Hver kór syngur 2 lög
Hátíðarkvöldverður
20.15 Húsið opnar
20.30 Borðhald hefst
Skemmtidagskrá og dans
Sunnudagur 27. apríl
09.00 – 09.30 Formannafundur og kaffisopi
09.30 – 10.30 Sameiginleg lög æfð
10.45 – 12.00 Advance og dægurlaga hópar æfa og fara síðan í mat
10.45 - 12.30 Rithmískur og ethnískur hópar æfa og fara síðan í mat
14.00 Tónleikar í íþróttahúsi
Mótsslit, kveðjukaffi og meðlæti
Tónleikar laugardaginn 26. aprílkl. 16:00 í íþróttahúsinu
Kyrjurnar
That’s what friend’s are for Burt Bacharach.
radds: Greg Gilpin
Ó, þú Magnús Eiríksson
Radds. Halldóra Aradóttir
Little things mean a lot Edith Lindaman og Carl Stutz
Radds. Halldóra Aradóttir
Kvennakór Garðabæjar
Stóðum tvö í túni íslensk þjóðlög ljóð úr Víglundarsögu
úts. Bára Grímsdóttir
Tantum ergo op. 65 nr. 2 Gabriel Gaure ljóð.
St. Thomas Aquinas
It was a lover an his lass John Rutter
ljóð: W. Shakespeare
Heklurnar
SumarástLag: Ólína Gunnlaugsdóttir
úts: Valentína Kay
UnaLag. Ólína Gunnlaugsdóttir
úts: Valentína Kay
The water is wide Lag : Amerískt þjóðlag
úts: Audrey Snyder
Kvennakór Hafnarfjarðar
Ástarraunir íslenskt þjóðlag úts:Hildigunnur Rúnarsdóttir (að hluta til stuðst við úts. Emils Thoroddsens)
The lass of Richmond hill Enskt þjóðlag/ensk þjóðvísa
úts. Jonathan Willcocks
Kvennakór Hornafjarðar
Ég vil lofa eina þá Lag: Bára Grímsdóttir gamalt helgikvæði
Pata Pata Lag og ljóð Miriam Makeba og Jerry Ragovoy
Jórukórinn
Þér við hlið Lag: Trausti Bjarnason,ljóð: Magnús Þór Sigmundsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson,
úts. Helena R. Káradóttir.
Hail Holy Queen Bandarískt lag,úts. Hannelore Baumann.
Kvennakórinn Seljurnar
Allt í himnalagi Lag: RagnarHermanns./Stefán Hilmars
radds. A.Þ.
Þín innsta þrá Lag: Erl/Jóhanna Erlingsdóttir
radds: A.Þ.
Volare Lag: Modugno/D Modugno, F. Magliacci
radds. A.Þ.
Kvennakór Suðurnesja
Dýravísur Jóns Leifs íslenskt þjóðlag
You raise me up Brendan Graham og Rolf Lovland
Ahay Toburan Lag frá Filipseyjum úts. R Dwyer og Martin Ellis
Kvennakór Kópavogs
Daughter will you marry? Texti: Paul M. Stouffe,
lag: Þjóðlag frá Pennsylvaniu-Þýskalandi.
That Dixieland sound Texti: Don Besig og Nancy Price
lag: Don Besig.
Kvennakórinn Ljósbrá
Stolin steflag/ljóð: Tómas R. Einarsson
radds: Eyrún Jónasdóttir
Deep river Negrasálmur,úts: Thomas Alvad.
Kvennakór Reykjavíkur
Jag unnar deg anda allt gott sænskt þjóðlag
The man I love/Embracable you George & Ira Gershwin Reykjavíkurdætur Ólafur Gaukur Þórhallsson& Ingólfur Sveinsson
Tónleikar sunnudaginn 27. aprílkl. 14:00 í íþróttahúsinu
Advance hópurinn, undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur, flytur lögin:
-
The garden of love, Lag: Rodney Money. Ljóð: William Blake
-
Sing me to heaven Lag: Daniel E. Gawthrop. Ljóð: Jane Griner. Úts: Paul Carey
-
Echo Lag: Elanor Daley. Ljóð: Christina Georgina Rossetti.
Dægurlagahópurinn, undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur, flytur lögin:
-
Við gengum tvö Lag: Friðrik Jónsson. Ljóð: Valdimar Hólm Hallstað
-
New York, New York Lag: John Kander, Ljóð: Fred Ebb. Úts: Anders Widestrand
-
Yellow submarine. Lag og ljóð: Lennon & Mc Cartney. Úts: Jóhann Morávek
-
Hvítir mávar Lag: Lange. Ljóð: Björn Bragi. Úts: Vilberg Viggósson
Þjóðlagahópurinn, undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur, flytur lögin:
-
Hljóðnar nú haustblær. Úkraínskt þjóðlag. Ljóð: Sigríður I. Þorgeirsdóttir.
-
Niska Banja Sígaunadans frá Serbíu Þjóðvísa. Úts: Nick Page
-
Moravískir dúettar
-
Sá vonsvikni Lag: Anton Dvorák
-
Fljúgðu söngfugl. Ljóð í ísl. þýð: Böðvar Guðmundsson
Rithmyski hópurinn, undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, flytur lögin:
-
El rithmo de la noche Lag og ljóð: Jay Althouse.
-
Jamaican market Place. Lag: Larry Farrow. Úts. Emily Crocker
-
Kenya Melodies. Ljóð: Kimani Njogu. Úts: Robert I. Hugh
-
People get ready. Lag og ljoð: Bob Marley. Úts: Ejvind Dengso
-
Sway . Lag: Pablo Beltrán Ruiz. Ljóð: Norman Gimble
-
Uno, dos y tres . Lag: Rafael Ortiz. Úts: Carlos R. Abril
Sameiginleg lög.
Stjórnandi Svavar Sigurðsson. Hljómsveit undir stjórn Jóhanns Morávek.
-
Þjóðlífsmyndin Lag: Jón Ásgeirsson. Ljóð: íslenskar þjóðvísur
-
Ömmubæn Lag og ljóð: Jenni Jóns. Raddsetning: Aðalheiður Þorsteinsdóttir
-
Amigos para sempreAndrew Lloyd Webber / Einar Steinþórsson
Úts: Guðni Þ. Guðmundsson / Marteinn H. Friðriksson
-
Landsmótslagið Þegar sólin skín.Lag: Þóra Marteinsdóttir.
Ljóð: Guðbjartur Össurarson
Landsmót Gígjunnar Hafnarfirði
2005
6. landsmót Íslenskra kvennakóra haldið í Hafnarfirði 29. apríl til 1.maí 2005
Mótshaldarar Kvennakór Hafnarfjarðar
Mótsegestir
Kvennakór Bolungarvíkur
Kvennakór Garðabæjar
Kvennakór Hornafjarðar
Kvennakór Kaupmannahafnar
Jórukórinn Selfossi
Kvennakór Reykjavíkur
Kvennakór Siglufjarðar
Kvennakór Suðurnesja
Kvennakórinn Ymur
Kvennakórinn Ljósbrá
Kvennakórinn Norðurljós
Kvennakórinn Seljur
Kyrjukórinn Þorlákshöfn
Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur
Fjöldi mótsgesta
400 konur tóku þátt í landsmótinu
Mótsstjóri
Hrafnhildur Blomsterberg
Dagskrá
Föstudagur 29. apríl.
Kl. 18:00 – 20:00
Afhending mótsgagna og kvöldhressing
Kl. 20:00 – 22:00 Óvissuferð
Kl. 22:00 – 23:30 Mótssetning og samsöngur
Laugardagur 30. apríl.
Kl. 08:00 – 09:00 Morgunverður
Kl. 08:30 – 09:00 Fundur kórstjóra
Kl. 09:15 – 12:00 Hópavinna
Kl. 12:00 – 13:30 Hádegisverður og æfing fyrir kórana á sínum lögum
Kl. 13:30 – 14:45 Æfing á sameiginlegum lögum og landsmótslaginu
Kl. 14:45 – 15:15 Síðdegiskaffi og farið í tónleikafötin
Kl. 15:30 Mun rúta flytja okkur í Víðistaðakirkju
Kl. 16:00 – 18:30 Tónleikar í Víðistaðakirkju
Kl. 20:30 Hátíðarkvöldverður og kvöldskemmtun
Sunnudagur 1. maí.
Kl. 09:00 – 09:45. Morgunverður.
Kl. 09:30 – 10:00. fundur formanna kóranna
Kl. 09:45 – 10:30. Æfing á sameiginlegum lögum
Kl. 10:45 – 12:00. Hópavinna
Kl. 12:00 – 13:00. Hádegisverður
Kl. 13:00 – 14:00. Frjáls tími
Kl. 14:00 – 16:30 . Sameiginlegir tónleikar í íþróttahúsinu
Kl. 16:30 Mótsslit og kveðjukaffi
Námskeið og leiðbeinindur
Námskeið, 4 vinnuhópar:
-
Jónasarlög:Lög eftir Atla Heimi Sveinsson Stjórnandi: Elín Ósk Óskarsdóttir
-
Íslenskir söngdansar:Lög og útsetningar eftir Jón Ásgeirsson Stjórnandi: Edit Molnar.
-
Dansþjálfun: Aðalheiður Ragnarsdóttir
-
Björgvinslög:Lög eftir Björgvin Þ. Valdimarsson Stjórnandi: Björgvin Þ. Valdimarsson
-
Kirkjuleg verk:Lög með trúarlegum textum.Stjórnandi: Gabriella Thész.
Inn í hvern vinnuhóp kom Óskar Einarsson og kenndi konum gospelsveiflu, sem flutt var á sameiginlegu tónleikunum.
Almenn lýsing á landsmótinu
6. Landsmót íslenskra kvennakóra var haldið með pompi og prakt í Hafnarfirði helgina 29. apríl til 1. maí. Segja má að mótið hafi verið með glæsilegasta móti og mikið um dýrðir. Alls tóku 15 kórar þátt í mótinu, flestir utan af landi og einn frá Danmörku. Mótið var sett á föstudagskvöld þar sem farið var yfir skipulag og framkvæmd yfir ilmandi súpu og brauði. Eftir það var haldið út í óvissuna og má þar segja að áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar hafi komið sannarlega á óvart þegar prúðbúnir eiginmenn, klæddir í kjól og hvítt, biðu 400 kvenna í Hellisgerði með kokteil og harmonikkutónlist. Vakti þetta að vonum mikla lukku allra kórkvenna og ekki síst hjá Hafnarfjarðarkórnum. Síðan var haldið af stað í kynningarferð um Hafnarfjörðinn undir stjórn Jónatans Garðarssonar. Aftur glöddu áhangendaklúbbur Kvennakórs Hafnarfjarðar okkur í Garðaholti með fögrum söng og söngvatni og enn á ný þegar komið var aftur í hús og farið yfir sameiginlegu lögin
Laugardagurinn var tekinn snemma enda margt spennandi framundan sem enginn vildi missa af. Eftir hollan og staðgóðan morgunverð flykktust konur í vinnuhópa og hófu að æfa undir stjórn valinkunnra tónlistarmanna þeirra Elínar Óskar Óskarsdóttur, Björgvins Þ. Valdimarssonar, Gabríelu Thész og Edit Molnar. Óskar Einarsson, stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur, fór á milli hópanna og kynnti gospelsöng sem vakti mikla kátínu og var mikið dillað og dansað meðan á því stóð.
Á laugardeginum voru haldnir tónleikar í Víðistaðakirkju þar sem hver kór söng tvö lög. Tónleikarnir gengu mjög vel og var allt skipulag á þeim til fyrirmyndar. Sungið var fyrir fullum sal af fólki og ljúfir tónar fylltu vit allra sem í kirkjunni voru þennan dag. Um kvöldið var hátíðarkvöldverður þar sem mótsgestum var skemmt með ýmsum uppákomum, s.s. tónlistaratriðum frá krökkum úr Flensborgarskóla, skörulegum ræðumönnum og happdrætti svo eitthvað sé nefnt. Dansinn tók svo öll völd þegar líða tók á kvöldið og er óhætt að segja að þessar 400 konur sem þarna voru staddar þyrftu enga dansherra – hér dönsuðu allir við alla langt fram á nótt.
Á sunnudeginum var svo haldið áfram að æfa í hópum og einnig voru sameiginlegu lögin æfð. Seinni part dags voru tónleikar þar sem hver vinnuhópur flutti það sem hafði verið unnið með um helgina. Fjöldi gesta kom á tónleikana og tókust þeir afar vel. Hrafnhildur Blomsterberg sleit svo vel heppnuðu móti og kvöddum við kórkonur, sem margar áttu langa leið fyrir höndum, með kaffi og meðlæti.
Það voru ákaflega þreyttar en glaðar konur sem brettu upp ermar og fóru að taka til og ganga frá eftir tónleikana. Eiginmenn létu ekki sitt eftir liggja frekar en fyrri daginn og áður en sól var sest þennan sunndag gátu hafnfirskar kórkonur loks haldið til síns heima, glaðar og stoltar af kóramótinu sínu. Helgi sem seint mun hverfa úr minnum Kvennakórs Hafnarfjarðar.
Geisladiskur
Gefin var út glæsilegur tvöfaldur geisladiskur með upptökum frá mótinu.Diskurinn heitir: Landsmót íslenskra kvennakóra Hafnarfirði (9. apríl - 1. maí 2005)
Landsmót Gígjunnar Reykjanesbær
2002
5. landsmót íslenskra kvennakóra 3-5. maí 2002
Mótshaldarar Kvennakór Suðurnesja
Mótsgestir
Kvennakórinn Ymur
Stjórnandi: Elfa M. Ingvadóttir
Kvennakór Hafnarfjarðar
Stjórnandi: Hrafnhildur Blomsterberg
Kvennakórinn Ljósbrá
Stjórnandi: Nína María Morávek
Undirleikari: Arnhildur Valgarðsdóttir
Kvennakór Siglufjarðar
Stjórnandi: Elías Þorvaldsson
Kvennakórinn í Bolungarvík
Stjórnandi: Guðrún B. Magnúsdóttir
Kvennakór Reykjavíkur
Stjórnandi: Sigrún Þorgeirsdóttir
Kvennakórinn Seljurnar
Stjórnandi: Ingibjörg Guðjónsdóttir
Undirleikari: Valgerður Andrésdóttir
Kvennakór Garðabæjar
Stjórnandi: Ingibjörg Guðjónsdóttir
Undirleikari: Valgerður Andrésdóttir
Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur
Stjórnandi: Sigrún Þorgeirsdóttir
Kvennakórinn Norðurljós
Stjórnandi: Sigríður Óladóttir
Kyrjukórinn Þorlákshöfn
Stjórnandi: Stefán Þorleifsson
Jórukórinn, Selfossi
Stjórnandi: Helena Káradóttir
Undirleikari: Þórlaug Bjarnadóttir
Kvennakór Suðurnesja
Stjórnandi: Sigurður Sævarsson
Undirleikari: Geirþrúður Bogadóttir
Fjöldi mótsegesta
387 konur tóku þátt í landsmótinu
Mótsstjóri
Margrét Bóasdóttir
Tónleikar haldnir í Keflavíkurkirkju föstudaginn 3.maí
Dagskrá tónleikana í Keflavíkurkirkju 3.maí
Jórukórinn, Selfossi
Kenndu mér að kyssa rétt
Austanfjallspolki
Kvennakórinn Seljurnar
Sá vonsvikni, Fljúgðu söngfugl, úr Moravískum dúettum Op 32
Kvennakór Hafnarfjarðar
Hljóðnar nú haustblær
Come again! Sweet love doth now invite
Agnus Dei
Kvennakórinn Ljósbrá
Sápukúlur
Kata litla í koti
Senjorítur Kvennakórs Reykjavíkur
Kvennakór Bolungarvíkur
The girl from Ipanema
The banana boat songLa Cumparsita
Kvennakór Suðurnesja
Varen
Money, money
Lokatónleikar landsmótsins voru haldnir í íþróttahúsinu sunnudaginn 4. maí
Flutningur kóra á hópverkefnum.
Hljómasyrpa, sérstaklega raddsett fyrir landsmótið af Aðalheiði Þorsteinsdóttur
Sigvaldahópur, flutti lög eftir Sigvalda Kaldalóns,
Vorvindur og Mamma ætlar að sofna
Kirkjulegt verk, Maria, Mater Gratiae
Sameiginleg lög
Allir kórarnir saman
Maístjarnan (flutt af tilefni 100 ára afmælis Halldórs Laxness)
Máríuvers
Vinamót (samið sérstaklega fyrir landsmótið af Sigurði Sævarssyni)
Þjóðsöngurinn
Kvennakórinn Ymur
Uti var hage
Gömul vísa um vorið
Kvennakór Garðabæjar
Abba labba lá
Oh, Peter do ring them bells
Kvennakór Reykjavíkur
Hættu að gráta hringaná
Spinna minni
Kvennakór Siglufjarðar
Við gengum tvö
Dagný
Kyrjukórinn Þorlákshöfn
Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík
Love changes everything
Aðeins þú
Kvennakór Suðurnesja
Meyjarblómi
America
Námskeið og leiðbeinendur
Söngtækni: Jóhann Smári Sævarsson
Afrískur söngur/hreyfing: Hreiðar Ingi Þorsteinsson
Alexanderstækni: Jónína Ólafsdóttir
Almenn lýsing á landsmótinu
Þetta var 5. landsmót kvennakóra á Íslandi og það fjölmennasta fram að þessu. Mikill áhugi var hjá kórkonum Kvennakórs Suðurnesja að gera mótið sem glæsilegast og með hjálp bæjarfélagana, fyrirtækja á Suðurnesjum, kórkonum bæði starfandi og konum sem höfðu starfað með kórnum, að ógleymdum fjölskyldum kórkvenna tókst að gera einmitt það.
Byrjað var á því að kórar hittust í íþróttahúsi bæjarins milli klukkan 18. og 19. á föstudeginum og fengu þar afhend mótsgögn og hittu sína tengla sem voru eldri kórfélagar mótshaldara og tóku að sér að halda utan um kórana á meðan á mótinu stóð. Síðan var snæddur léttur kvöldverður og haldið eftir það í Keflavíkurkirkju. Þar hélt Aðalheiður Gunnarsdóttir, þáverandi formaður Kvennakórs Suðurnesja opnunarræðu og setti mótið. Margrét Bóasdóttir tók síðan við taumunum en hún var mótsstjóri landsmótsins í Reykjanesbæ og stóð sig með mikilli prýði eins og hennar er von og visa. Margrét kynnti síðan tónleika sem voru í beinu framhaldi og þar komu fram með eigin prógram um helmingur þátttökukóra á mótinu. Eftir tónleikana fór síðan allur hópurinn í rútum í Bláa lónið þar sem hægt var að skella sér í lónið og láta líða úr sér ferðaþreytuna eða að fá sér drykk og léttar veitingar. Þarna varð úr hin yndislegasta stund og lagið að sjálfsögðu tekið líka.
Á laugardeginum var síðan farið snemma af stað og veitti ekki af þar sem miklu þurfti að koma í verk þann daginn. Æfð voru sameiginlegu lög kóranna, kórarnir æfðu hópaverkefnin og síðan var öllum hópnum skipt í fjóra hópa sem skiptust á að fara á þau þrjú námskeið sem í boði voru og skoðunarferð með rútu í Duus hús í Reykjanesbæ. Klukkan fimm átti síðan að fara í Slippinn í Keflavík þar sem fara átti fram gjörningur og flutningur kirkjulega verksins í hópavinnunni en veðurguðirnir voru ekki alveg sáttir þessa helgi og helltu yfir okkur rigningu og roki þannig að fresta varð þeirri ferð en að öðru leyti hafði veðrið ekki áhrif. Klukkan 20:00 hittust síðan allir í Íþróttahúsinu til hátíðarkvöldverðar og kvöldvöku. Þarna var mikið fjör og mikið gaman og var bókstaflega dansað á borðum í sumum tilfellum. Þessi skemmtun verður lengi í minnum höfð á Suðurnesjum, enda alveg einstaklega fjörug og skemmtileg.
Sunnudagurinn var svo tekinn snemma og byrjað að æfa á fullu strax klukkan níu. Síðan héldu kórarnir í Keflavíkur og Ytri-Njarðvíkurkirkju í guðsþjónustu kl. 11. Hádegismatur var snæddur á eftir í Íþróttahúsinu, síðasta hönd lögð á lokatónleikana sem síðan byrjuðu kl. 14. Þetta voru glæsilegir tónleikar og alveg stórfenglegt að heyra allan þennan hóp syngja saman. Að endingu var síðan kveðjusamsæti þar sem kórarnir þökkuðu fyrir sig og bæjarstjóri Reykjanesbæar og menningarfulltrúinn héldu ræður og þökkðu öllum fyrir komuna.
Margrét Bóasdóttir sleit síðan mótinu og voru það margar ánægðar konur sem héldu heim á leið að lokinni kveðjustund.
Bolir og myndir af hverjum kór
Bolir með mynd af Íslandi þar sem merkt var inn á allir þeir staðir á landinu sem landsmót hafði verið haldið.
Listakonan Hildur Harðardóttir í Kvennakór Suðurnesja málaði myndir af öllum kórunum í sínum kórbúningum sem hægt var að kaupa á mótinu.
Landsmótslagið
Vinamót (2002)
Lag: Sigurður Sævarsson
Ljóð: Hallgrímur Pétursson
VHS upptaka frá mótinu Gerð var VHS spóla með upptökum af þeim tónleikum sem haldnir voru á mótinu og innskotum frá námskeiðum, skemmtunum og uppákomum á meðan á mótinu stóð. Kórarnir gátu lagt inn pöntun á mótinu og keypt þessa spólu.
Landsmót Gígjunnar Siglufjörður 1999
Siglufjörður 8.-10. Október
Kvennakór Siglufjarðar sá um allt skipulag mótsins
Mótsgestir
Kvennakórinn Freyjur, Borgarfirði
Stjórnandi: Zsuzan Budai
Kvennakórinn Lissý Þingeyrjarsýslu
Stjórnandi: Róar Kvam
Kvennakórinn Ljósbrá, Rangárvallasýslu
Stjórnandi: Nína María Moråvek
Kvennakór Hafnarfjarðar
Stjórnandi: Jensína Waage
Kvennakór Hornafjarðar
Stjórnandi: Vilborg Þórhallsdóttir
Kvennakór Reykjavíkur
Stjórnandi: Sigrún Þorgeirsdóttir
Kvennakór Siglufjarðar
Stjórnandi: Elías Þorvaldsson
Fjöldi mótsgesta
224 konur tóku þátt í landsmótinu.
Dagskrá
Föstudagur 8. okt.
Íþróttahús:
kl: 17:00 – 19:00 Gögn afhent, vísað í gististaði
kl: 19:00 – 20:00 Léttar veitingar
kl: 20:00 Mótssetning
kl: 20:30 Upphitun – Margrét Bóasdóttir
kl: 20:45 Æfing á sameiginlegum lögum
kl: 22:00 Kaffisopi
Laugardagur 9.okt
.kl: 7:30 – 9:30 Morgunmatur Hótel Lækur
kl: 9:30 Upphitun Íþróttahús
kl: 10:00 Æfing hjá hverjum kór fyrir sig, 15 mín Íþróttahús
kl: 11:00 Hópvinna hjá enskum söng og raddþjálfurum Tónskóli
kl: 11:45 – 13:00 Léttur hádegisverður Hótel Lækur
kl: 15:00 Tónleikar Íþróttahúskl: 19:30 Húsið opnað
kl: 20:30 Lokahóf, matur, skemmtun og dansleikur Íþróttahús
Sunnudagur 10. okt
kl: 8:00 – 10:00 Morgunmatur Hótel Lækur
kl: 10:00 Formannafundur Hótel Lækur
kl: 10:00 – 13:00 (skipt var í hópa)
Síldarminjasafn,
Myndlistasýnig Aðalheiðar Eysteinsdóttur í Ráðhúsi,
Bútasaumssýning í Suðurgötu 10,
Opið hús hús Safnarafélaginu í Aðalgötu
Hópvinna hjá enskum söng og raddþjálfurum
kl: 11:00 Messa í Siglufjarðarkirkju
kl: 13:00 Kveðjukaffi í Íþróttahúsi
kl: 15:00 Heimferð.
Tónleikadagskrá
Tónleikar í íþróttahúsi Siglufjarðar kl: 15:00:
Sameiginleg lög:
Kirkjuhvoll / Bjarni Þorsteinsson / Úts. Antonia Hevesi
Stjórnandi: Elías Þorvaldsson
Undirleikur: Antonía Hevesi
Yfir voru ættarlandi / Sigfús Einarsson /Steingrímur Thorsteinsson / Umritun:Glúmur Gylfason
Stjórnandi: Jensína Waage
Landið vort fagra / Árni Thorsteinsson
Stjórnandi: Roar Kvam
Kvennakór Siglufjarðar:
Stjórnandi: Elías Þorvaldsson
Undirleikur: Antonía Hevesi
Sem lindin tær / Cacano-Conti / Bjarki Árnason
Silungurinn / F.Schubert / Úts: Rögnvaldur Valbergsson
Fylgd / Sigursveinn D. Kristinsson / Guðmundur Böðvarsson
Freyjukórinn Borgarfirði
Stjórnandi: Zsuzanne Budai
Undirleikur: Steinunn Árnadóttir
Go tell it on the mountain / negrasálmur
Nobody knows / negrasálmur
Vorvindar / Richard Bennet / Páll Helgason
Kvennakórinn Lissý, Þingeyjarsýslu
Stjórnandi: Roar Kvam
Son Guðs ertu með sanni / Helgi Pétursson
Fölnuð er Liljan / Friðrik Jónsson / Benedikt Gröndal
Einsöngur: Hildur tryggvadóttir
Gamli Nói / Carl Mikael Belhman / Sigurður Þórarinsson
Kvennakór Hornafjarðar
Stjórnandi: Vilborg Þórhallsdóttir
Undirleikur: Jónína Einarsdóttir
Dagur er risinn / Geliskt lag 7 Heimir Pálsson
Ef þig langar að syngja / Bengt Ahlfors / Heimir Pálsson
Hevenu shalom aleichem / Við færum ykkur friðinn
Kvennakór Hafnarfjarðar
Stjórnandi: Jensína Waage
Undirleikur: Antonía Hevesi
Ave verum korpus / W.A Mozart / Latneskur helgitexti
You´ll never walk alone / Richard Rodgers / William Sticklef
Garðljóð / Jón Ásgeirsson / Tómas Guðmundsson
Kvennakórinn Ljósbrá, Rangárvallasýslu
Stjórnandi: Nína María Moråvek
Undirleikur: Antonía Hevesi
flautuleikur: Jón Örvar Gestsson
Betlikerlingin / Sigvaldi Kaldalóns / Gestur Pálsson
Sólarsöngur ljósbrár / Rússneskt þjóðlag / Guðrún Sigurðardóttir / Úts. Bára Grímsdóttir
Þrjú pólsk þjóðlög:
1. Þótt hún slái tíu og tólf
2. Sögðu mér það fyrir sunnan
3. Dansar hún litla lipurtá
Kvennakór Reykjavíkur
Stjórnandi: Sigrún Þorgeirsdóttir
Tíminn líður trúðu mér / Ísl. Þjóðlag / Árni Harðarson
Ute vår hage / Lag frá Gotlandi / Úts. Hugo Alfén
Þó þú langförull legðir / Sigvaldi Kaldalóns / Stephen G. Stephanson / úts. Hildigunnur Rúnarsdóttir
Sameiginleg lög
Undirleikari: Antonía Hevesi
Allir vindar blunda / J. Brahms / Þýðing: Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup /
Stjórnandi: Zsuzanne Budai
Drottinn er minn hirðir / R. Schubert / Þýðing: Sigurbjörn Einarsson biskup /
Stjórnandi: Sigrún Þorgeirsdóttir
Skemmtilegar uppákomur eða fréttir
Á laugardagskvöldinu var haldið lokahóf í íþróttahúsinu, matur, skemmtun og dansleikur. Hljómsveitin Harmonikkufélag Siglufjarðar lék fyrir dansi.
Landsmót Gígjunnar Reykholt í Borgarfirði
1997
24 - 26 október
Mótshaldarar
Freyjukórinn í Borgarfirði
Stjórnandi: Bjarni Guðráðsson
Undirleikari: Steinunn Árnadóttir
Mótsgestir
Kvennakór Hafnarfjarðar
Stjórnandi Halldór Óskarsson
Kvennakór Siglufjarðar
Stjórnandi og undirleikari Elías Þorvaldsson
Kvennakór Suðurnesja
Stjórnandi Aagota Joó
Undirleikari Vilberg Viggósson
Kvennakórinn Lissý
Stjórnandi Hólmfríður Benediktsdóttir
Undirleikari: Vilberg Viggósson
Kvennakórinn Ljósbrá
Stjórnandi Eyrún Jónasdóttir
Undirleikari Agnes Löve
Kvennakórinn Ymur
Stjórnandi Dóra Líndal Hjartardóttir
Freyjukórinn
Stjórnandi Bjarni Guðráðsson
Undirleikari Steinunn Árnadóttir
Fjöldi mótsgesta
250 konur tóku þátt í landsmótinu
Mótsstjóri
Margrét Bóasdóttir
Dagskrá
Föstudagur 24. október 1997
18-20
Mæting og léttur kvöldverður
20 Mótssetning Kirkja
20:20 Upphitun Kirkja
20:45 Æfing á Þú álfu vorrar og Land míns föðurKirkja
21:15 Kaffisopi Safnaðarsalur
21:25 Æfing á stóru verkunuma)
Kirkja a)(Laudate)
b) Snorrastofa (Ave…)
c) Safnaðarsalur (Dúett)
21:55 Æfing á Aðeins eitt blóm Kirkja
22:10 Pípuhattur prestsins:
frjáls stutt atriði, TOPP TÍU dregin upp úr hattinum… Kirkja
Laugardagur 25. október 1997
9:30 Upphitun Kirkja
9:50 Verkefni að eigin vali / 6 hópar, sem fá sér kaffi fyrir kl. 11 a) Kirkja
b) Snorrastofa
c) - f) Reykholtsskóli
11 Æfing á Þjóðsöng /Aðeins eitt blóm /Þú álfu.../ Land míns… Kirkja
11:30 Æfing á stóru verkunum
a) Kirkja (Laudate pueri)
b) Snorrastofa (Ave…) skiptir við Laudate hópinn kl 12 og fær að fara í kirkjuna
c) Safnaðarsalur (Dúett)
12 Hádegisverður / Fyrst fer Dúett hópur, þá Laudate og síðast Ave Maria; Dúett æfir í kirkju á meðan Ave hópur er í mat Mötuneyti Rkh.skóla
13-15 Séræfingar kóra (15 mín pr. kór)/ fyrst þeir, sem fóru fyrst í mat, Freyjur síðastar
Kaffisopi í safnaðarsal
13; 13:30 og 14 Gönguferðir með sögulegu ívafi í fylgd sr. Geirs Waage Reykholtsstaður
16-18 TÓNLEIKAR KIRKJA
19:30 Rútur leggja af stað frá Rkh Við anddyri mötuneytis
19:45 Kvöldverður og kvöldvaka Þinghamar á Varmalandi
Sunnudagur 26. október 1997
10 Upphitun Kirkja
10:20 Val-hópar 1-6 Sama skipulag og á laugardag, sjá kl. 9:50
11:15 Æfing á sálmum, Þjóðsöng, Land míns.. og Þú álfu… Kirkja
12 Matur / Æfing á stóru verkum Sama skipulag og á laugardag
14 Helgistund og mótsslit Kirkja
15:30 Kaffi og samvera Mötuneyti Rkh.skóla
Tónleikadagskrá
Dagskrá tónleika, laugardaginn 25. okt. kl. 16
Samsöngur:
Aðeins eitt blóm Hildigunnur Rúnarsdóttir / Þuríður Guðmundsdóttir
lagið samið fyrir Freyjukórinn vegna landsmótsins - frumflutningur
Stjórnandi: Bjarni Guðráðsson
Undirleikari: Steinunn Árnadóttir
Einsöngur: Dagný Sigurðardóttir
Þú álfu vorrar yngsta land Sigfús Einarsson / Hannes Hafstein
Stjórnandi: Halldór Óskarsson
Ave María Joh. Brahms
Stjórnandi: Bjarni Guðráðsson
Undirleikari:Vilberg Viggósson
Kvennakórinn Lissý
Stjórnandi Hólmfríður Benediktsdóttir
Undirleikari: Vilberg Viggósson
Einsöngur: Hildur Tryggvadóttir
1. Sanctus et Benedictus Ch. Gounod
2. Finlandia J.S. Sibelius / ísl. texti Axel Guðmundsson
Kvennakórinn Ljósbrá
Stjórnandi Eyrún Jónasdóttir
Undirleikari Agnes Löve
1. Austurfjöll Ingibjörg Sigurðard. / Guðmundur Guðm.sonúts. Hildigunnur Rúnarsd.
2. Go down Moses Negrasálmur / úts. N. Clifford Page
Kvennakór Hafnarfjarðar
Stjórnandi Halldór Óskarsson
1. Hafnarfjörður Friðrik Bjarnason / Guðlaug Pétursdóttir
2. Enn er sumar Friðrik Bjarnason / Guðmundur Guðmundsson
Kvennakór Siglufjarðar
Stjórnandi og undirleikari Elías Þorvaldsson
1. Dísir vorsins Lag og texti Bjarki Árnason
2. Síldarbærinn Elías Þorvaldsson / Una S. Ásmundsdóttir
Kvennakór Suðurnesja
Stjórnandi Aagota Joó
Undirleikari Vilberg Viggósson
1. Þitt fyrsta bros Gunnar Þórðarson / Ólafur H. Símonarson
2. Söngur Herbert H. Ágústsson / Grétar Fells
Kvennakórinn Ymur
Stjórnandi Dóra Líndal Hjartardóttir
1. Sofðu rótt Jóh. Brahms / texti A. Olavsonísl. þýð. Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi
2. Veröld fláa ísl. Þjóðlag við þjóðvísu radds. Jón Ásgeirsson
3. Hor care canzonette Claudio Monteverdi
Freyjukórinn
Stjórnandi Bjarni Guðráðsson
Undirleikari Steinunn Árnadóttir
1. Hallarklukkan G. Vennerberg / ísl. þýð. Egill Bjarnason
2. Maríutásur Bjarni Guðráðsson / Unnur Sólrún Bragadóttir
3. Kyssti mig sól Finnur Torfi Stefánsson / Guðmundur Böðvarsson
Samsöngur:
Stabbat mater dolorosa G. B. Pergolesi
Stjórnandi: Aagota Joó
Undirleikari: Vilberg Visggósson
Laudate pueri Dominum Mendelsohn-Bartholdy
Stjórnandi: Hólmfríður Benediktsdóttir
Undirleikari: Agnes Löve
Land míns föður Jóh. úr Kötlum / þórarinn Guðm. / umritun Smári Ólafsson
Stjórnandi: Eyrún Jónasdóttir
Helgistund & Samsöngur
Helgistund og samsöngur á sunnudeginum,26. október kl. 14
Forspil
Sálmur nr. 484, Kominn er veturinn
Guðspjall dagsins
Sálmur nr. 535, Þér lof vil ég ljóða
Hugvekja, sr. Geir Waage
Sálmur nr. 532, Gefðu að móðurmálið mitt
7. Lofsöngur, Ó Guð vors lands / Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Matth. Jochumsson / umritun Jón Ásgeirsson
Kórar sameinaðir:
1. Stabbat mater dolorosa / G. B. Pergolesi
Stjórnandi:Aagota Joó
Undirleikari: Vilberg Viggósson
2. Ave Maria / Joh. Brahms
Stjórnandi:Bjarni Guðráðsson
Undirleikari: Vilberg Viggósson
3. Laudate pueri Dominum / Mendelsohn-Bartholdi
Stjórnadi Hólmfríður Benediktsdóttir
Undirleikari: Vilberg Viggósson
4. Þú álfu vorrar yngsta land / Sigfús Einarsson / Hannes Hafstein
Stjórnandi: Dóra Líndal Hjartardóttir
5. Land míns föður /Þórarinn Guðmundsson / Jóh. úr Kötlum/umritun Smári Ólafsson
Stjórnandi: Elías Þorgeirsson
Mótsslit
Aðeins eitt blóm / Hildigunnur Rúnarsdóttir / Þuríður Guðmundsdóttir
Stjórnandi: Margrét Bóasdóttir
Undirleikari: Steinunn Árnadóttir
Einsöngur: Dagný Sigurðardóttir
Námskeið & leiðbeinendur
Boðið var uppá sex lög af ýmsum gerðum að æfa, sem kórarnir höfðu ekki haft til æfinga áður, nótur voru settar aftast í möppu.Stjórnendur kóranna sáu um að leiðbeina.
Útgáfa geisladiska
Dagskráin var tekin upp og gefin út á geisladiski, sem heitir Aðeins eitt blóm.
Almenn lýsing á landsmótinu
Fyrstu viðbrögð við auglýsingu um landsmótið, haustið 1996 bentu til að um 7-800 konur gætu lagt leið sína á landsmótið, en eftir því sem á veturinn leið gisnaði sú tala. Undirbúningurinn stóð sem sagt í eitt ár. Mótsgestir mættu á föstudagskvöldi og fóru heim á sunnudagseftirmiðdegi. Gisting og næring var að mestu í Reykholti, en þó nokkur hópur (Hafnfirðingarnir) þurfti að gista á Varmalandi og hafa rútu til að ferðast á milli. Samsöngur, messa og tónleikar fóru fram í Reykholtskirkju og æfingar í Snorrastofu, sem varla var nema ber steinninn, í gamla héraðsskólahúsinu og mötuneyti hans (verðandi hóteli)
Skemmtilegar uppákomur
Að kvöldi föstudagsins var dregið úr pípuhatti prestsins á staðnum, Geirs Waage. Í hann höfðu gestirnir lagt seðla, með atriðum á, sem þeir voru tilbúnir að flytja á stundinni. Mjög skemmtilegt og ótrúlega margt kom úr pokahorninu.
Á laugardagskvöldinu var kvöldvaka í Þinghamri á Varmalandi með mat og skemmtidagskrá. Sérstök skemmtinefnd hafði veg og vanda af þeirri samkomu. Tókst mjög vel í alla staði.
Freyjukórinn leitaði til þáverandi forsetafrúar, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur um að vera verndari landsmótsins og hafði hún tekið því bónorði vel. Þegar til landsmótsins kom, var Guðrún Katrín orðin veik og aflýsti allri opinberri þátttöku sinni. Við mótsslit las formaður Freyjukórsins skeyti til Guðrúnar, þar sem henni var óskað alls hins besta í veikindunum.
Landsmótslag
Aðeins eitt blómLag: Hildigunnur Rúnarsdóttir
Texti: Þuríður Guðmundsdóttir
Lagið var samið fyrir Freyjukórinn vegna landsmótsins og það var frumflutt af öllum kórnunum á landsmótinu á tónleikum laugardaginn 25. október 1997.
Landsmót Gígjunnar Reykjavík
1995
2. landsmót Íslenskra kvennakóra var haldið í Reykjavík 23. til 25. júní 1995
Staðsetning
Miðstöð mótsins var í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7.
Einnig var æft í Melaskóla og Hagaskóla.
Mótshaldara
rKvennakór Reykjavíkur sá um mótið en stjórn kórsins sá um allan undirbúning.
Í stjórn Kvennakórs Reykjavíkur voru á þessum tíma þær:
Rannveig Pálsdóttir, formaður
Ágústa Jóhannsdóttir, ritari
Hallveig Andrésdóttir, gjaldkeri
Margrét Á Halldórsdóttir, meðstjórnandi
Sigríður Helga Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi.
Listrænn stjórnandi mótsins var Margrét J. Pálmadóttir.
Mótsgestir
Ellefu kórar víðs vegar af landinu tóku þátt í landsmótinu:
Kvennakór Hreyfils
Kvennakór Reykjavíkur
Kvennakór SFR (Starfsmannafélag ríkisstofnana)
Kvennakór Siglufjarðar
Kvannakór Suðurnesja
Kvennakórinn Freyjur
Kvennakórinn Lissý
Kvennakórinn Ljósbrá
Kvennakórinn Seljurnar
Kvennakórinn Ymur
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur
Fjöldi mótsgesta
200 konur tóku þátt í mótinu
Nánar um mótsgesti
Kvennakórinn Seljurnar var stofnaður í maí 1991 og starfar innan Kvenfélags Seljakirkju. Félagar eru 30. Stjórnandi er Kristín Pjetursdóttir, raddþjálfari er Sigríður Gröndal og undirleikari Daníe Arason. Kórinn hefur haldið tónleika, einn og með öðrum kórum, nú seinast í Seljakirkju.
Kvennakór Reykjavíkur var formlega stofnaður 8. maí 1993, eftir 3 mánaðar undirbúningsstarf. Félagar eru 120. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir, raddþjálfari Björk Jónsdóttir og undirleikari Svana Víkingsdóttir. Kórinn heldur árlega vor- og jólatónleika auk minni tónleika. Söngferð var farin á kvennaráðstefnuna Nordisk Forum 1994. Kórinn hefur sungið í útvarpi og sjónvarpi og við ýmis tilefni, nú seinast á Austurvelli 17. júní.
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur verður formlega stofnuð í haust við samruna gospelhóps og skemmtikórs. Reiknað er með að félagar verði um 70. Stjórnandi verður Jóhanna V. Þórhallsdóttir og undirleikari Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Gospelhópurinn hefur haldið sjálfstæða tónleika og sungið með Kvennakórnum á vortónleikum. Báðir hóparnir hafa komið fram á samkomum innan kórsins.
Opinn kór Kvennakórs Reykjavíkur var stofnaður í tilefni kvennakóramótsins og er fyrir konur sem ekki eru í kórastarfi eða starfa í blönduðum kórum. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar.
Kvennakór Hreyfils var stofnaður 1993. Félagafjöldi er 27. Stjórnandi er Sigurbjörg Hólmgeirsdóttir, raddþjálfari Sigurður Bragason og Daníel Arason er undirleikari. Kórinn hefur haldið sjálfstæða tónleika og tekið þátt í kóramótinu Tónar á vegum Sambands alþýðukóra.
Kvennakórinn Ymur Akranesi var stofnaður í febrúar 1995. Félagar eru um 60. Stjórnandi er Dóra Líndal Hjartardóttir og undirleikari Bryndís Bragadóttir. Kórinn hefur sungið á tónleikum í heimabyggð.
Kvennakór Suðurnesja var stofnaður 22. febrúar 1968 og hefur starfað með hléum síðan, einn eða í samstarfi við aðra kóra. Félagar eru 40. Stjórnandi er Sigvaldi Kaldalóns, raddþjálfari er Anna Margrét Kaldalóns og undirleikari er Ragnheiður Skúladóttir. Kórinn hefur tekið þátt í alþjóðamóti á Írlandi og fór í tónleikaferð til Kanada 1977. Kórinn tók þátt í 1. landsmóti kvennakóra sem haldið var 1992. Kórinn hefur haldið tónleika reglulega síðustu ár.
Kvennakór Siglufjarðar var stofnaður árið 1979. Félagar eru 27. Stjórnandi og undirleikari er Elías Þorvaldsson. Kórinn syngur á samkomum í bæjarfélaginu og heldur vortónleika, oftast 20. maí á afmæli Siglufjarðarbæjar.
Kvennakórinn Lissý var stofnaður árið 1985 í tilefni af 80 ára afmælis Kvenfélagssambands Suður-Þingeyinga. Félagar eru 40. Stjórnandi er Hólmfríður Benedikstdóttir og undirleikari Helga Bryndís Magnúsdóttir. Kórinn heldur venjulega tónleika vor og haust. Kórinn fór í söngferð til Reykjavíkur 1990, til Þýskalands 1991 og um norðurland 1994. Haustið 1992 söng kórinn inn á geisladiskinn “Láttu rætast draum”.
Kvennakórinn Ljósbrá var stofnaður í febrúar 1989 og starfaði fyrstu tvö árin sem kvennakór innan kirkjukórs Fljótshlíðar. Félagar eru milli 30-40. Stjórnandi er Stefán Þorleifsson og undirleikari Anna Magnúsdóttir. Kórinn hefur sungið við fjölmörg tækifæri innan héraðs.
Kvennakórinn Freyjur í Borgarfirði var stofnaður 1990. Félagar eru 30-35. Stjórnandi er Bjarni Guðráðsson og undirleikari Steinunn Árnadóttir. Kórinn heldur tónleika á síðasta vetrardag og einnig syngur hann við ýmis tækifæri innan sveitar. Kórinn hefur farið í tónleikaferðir innanlands og tekið á móti kórum heima fyrir.
Kvennakór SFR (Starfsmannafélags Ríkisstofnana) var stofnaður haustið 1991. Félagar eru 25. Stjórnandi og undirleikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kórinn hefur sungið á hinum ýmsu stofnunum og tekið þátt í kóramótinu Tónar á vegum Sambands alþýðukóra.
Mótstjóri og listrænn stjórnandi Rannveig Pálsdóttir formaður Kvennakórs Reykjavíkur var mótstjóri og Margrét J. Pálmadóttir stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur var listrænn stjórnandi mótsins.
Dagskrá
Föstudaginn 23. júní
Allir þátttakendur hittust í húsnæði Kvennakórs Reykjavíkur að Ægisgötu 7 kl. 18, þar sem Rannveig Pálsdóttir, formaður kórsins, setti mótið með örstuttri ræðu. Síðan æfðu allar saman sameiginlegu lögin úr nótnaheftinu.
Þetta voru lögin Summertime, Climb every mountain, Exodus og Joshua úr A hluta, Betlikerlingin, Kvennaslagur, Vem kan segla og Nina Nana úr B hluta og Ave Maria og Ahi, che ques’ úr C hluta.Hlé var gert um kl. 20 og var þá boðið upp á léttar kaffiveitingar.
Margar konur áttu þá enn eftir að greiða þátttökugjöld og var hafist handa við innheimtu.
Þá var skipt í raddir og haldið áfram að æfa sameiginlegu lögin Búðarvísur, Vökuró, Fjær er hann ennþá og Lippen schweigen úr B hlutanur og Ave Maria úr C hluta. Þurftu konur að bera með sér stóla milli sala í æfingahúsinu.
Samæfing allra radda var svo kl. 22. Þrátt fyrir langan dag héldu stjórnendur og leiðbeinendur fund að lokinni æfingu til að ákveða efnisskrá lokatónleika.
Laugardaginn 24. júní
Æfingar í hópum hófust kl. 9 um morguninn.
Hópur A æfði í Hagaskóla undir stjórn Aðalheiðar, Jóhönnu og Kristínar.
Hópur B æfði á Ægisgötunni undir stjórn Guðbjargar, Margrétar og Sigvalda.
Hópur C æfði í Melaskóla undir stjórn Dóru, Helgu Bryndísar og Hólmfríðar.
Æft var til hádegis en þá var gengið niður á Ingólfstorg þar sem hópurinn allur stillti sér upp og hélt 40 mínútna tónleika.
Strætisvagnar voru mættir við Ingólfstorg að tónleikum loknum og óku þeir konum sem þiggja vildu boð Reykjavíkurborgar um sundprett inn í Laugardalslaug. Þeim var síðan skilað niður í bæ aftur klukkutíma síðar. Frjáls tími var til kl. 16 og gátu konur vappað um bæinn og nýtt sér afsláttartilboð verslana og veitingastaða í tilefni af mótinu.
Samæfing hófst á Ægisgötunni kl. 16 og stóð til kl. 19. Þá máttu óbreyttar hverfa á vit ævintýra kvöldsins á götum og veitingahúsum borgarinnar, en ábyrgir stjórnendur setust á fund til að ræða framtíð kvennakóramóta á landinu.
Sunnudaginn 25. júní
Æfingar hófust kl. 9:30.
Hópar A og B hittust á Ægisgötunni en hópur C mætti í Seltjarnarneskirkju þar sem hann söng við messu eftir æfingu.
Um hádegið hittust allar í Borgarleikhúsinu og fengu léttar veitingar.
Kl. 13 var mæting á sviði í kórbúningum og æft í tæpann klukkutíma. Eftir það gátu konur lagt síðustu hönd á snyrtinguna áður en opin æfing hófst kl. 14, sem stóð í 80 mínútur. Síðan var hvílst til kl. 16 en þá hófust tónleikar sem stóðu hlélaust í 75 mínútur.
Höfðu konur þá staðið á sviði nær linnulaust í rúma 4 klukkustundir.
Lokahóf mótsins var haldið í andyri Borgarleikhússins í kjölfar tónleikanna. Þar voru tilbúin veisluborð með afar fallegum og freistandi mat, en mörgum þótti kosturinn naumt skammtaður.
Námskeið og leiðbeinendur
Kórunum var skipt í þrjá hópa sem æfðu hver sína efnisskrá:
Hópur A æfði negrasálma og lög úr söngleikjum.
Leiðbeinendur voru þau: Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Jóhanna Þórhallsdóttir og Kristín Pjetursdóttir.
Hópur B æfði íslensk og erlend lög.
Leiðbeinendur voru þær: Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Margrét J. Pálmadóttir og Sigvaldi Kaldalóns.
Hópur C æfði kirkjutónlist og madrigala.
Leiðbeinendur voru þær: Dóra Líndal Hjartardóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir og Hólmfríður Benediktsdóttir
Einnig æfðu allir hóparnir sömu 15 lögin að hluta úr öllum hópunum.
Landsmótspokar
Konur fengu gjafapoka frá þeim sem styrktu mótið
Útgáfa
Nótnahefti var gefið út í tilefni mótsins og var það notað við æfingar bæði í hópunum og í sameiginlegu efnisskránni.
Ekkert mótslag var samið.