• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Uppselt á vortónleika Léttsveitarinnar

19. apríl 2009

Uppselt er á tónleika Léttsveitarinnar "Óskalög Sjómanna" í Háskólabíói næstkomandi sunnudag.

Ekki verða haldnir fleiri tónleikar með þessari dagskrá að sinni en ekki er ólíklegt, vegna gríðarlegs áhuga, að á haustdögum megi þessi gömlu góðu lög hljóma á ný og þeir sem ekki fengu miða nú geti því fengið að njóta þeirra.

Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur

Lesa meira

Vortónleikar Léttsveitarinnar - UPPSELT

19. apríl 2009

Léttsveit Reykjavíkur flytur sína árlegu vortónleika í Háskólabíói sunnudaginn 3. maí kl. 17:00.

Að þessu sinni bera tónleikar yfirskriftina "Óskalög sjómanna". Efnisskráin samanstendur aðallega af lögum og ljóðum sem hljómuðu gjarnan í óskalagaþætti sjómanna. Textarnir fjalla oft um sjómannskonuna, sem beið heima og lýsir tilfinningum sínum í ástar- og saknaðarljóðum. Hver man ekki eftir "Stebba og Línu" og "Heyr mína bæn"?

Sérlegir gestir kórsins verða hin ástsæla söngkona Helena Eyjólfsdóttir og hinn litríki laga- og textahöfundur Gylfi Ægisson.

Athugið að aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða.


Miðaverð kr. 2.500-
Miðar verða seldir við innganginn.
Hægt er að nálgast miða hjá Léttsveitarkonum eða
senda tölvupóst á netfang kórsins eða hringja í síma 897 1885

Uppselt er á tónleika Léttsveitarinnar.

Lesa meira

Blómlegt starf í Kaupmannhöfn

17. apríl 2009























Kæru Gígjufélagar

Hér eru fréttir af Íslenska kvennakórnum í Kaupmannahöfn.

Við frumfluttum Stökur á kvennadeginum hér í Kaupmannahöfn. Dagurinn var haldinn í Jónshúsi sem er hús okkar Íslendinga hér í Köben. Það gekk mjög vel og frábært að vera með í frumflutning sem líka fer fram hinum megin við Atlandshafið.

Vorið er komið hér í Kaupmannahöfn og að morgni föstudaginn 27. mars, hoppuðum við í lest til Stokkhólms, með vor í æðum. Við vorum á leið til Stokkhólms, þar sem sjö íslenskir kórar hittust til að syngja og skemmta sér saman. Það eru kórar frá Osló, Lundi, Gautaborg, London, Stokkhólm og tveir kórar frá Kaupmannahöfn, við og Staka. Allir kórarnir eru blandaðir kórar nema við.

Þegar við nálguðumst Stokkhólm byrjaði að snjóa og það ágerðist. Þetta var eins og að ferðast aftur í tíman inní veturinn. En við konur höfum svo mikla aðlögunarhæfni :-) svo við brostum bara útaf eyrum og skemmtum okkur konunglega. Mjög vel heppnað mót. Við byrjuðum tónleikana og sungum Stökur fyrst. Það var mjög vel heppnað.

Kærar kveðjur hér frá Íslenska kvennakórnum í Kaupmannahöfn.
Steinunn formaður

Lesa meira

Árshátíð og vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar

3. apríl 2009

Vortónleikar Kvennakórs Garðabæjar verða 10. og 11. maí
Eins og jafnan á vorönn er í mörg horn að líta hjá Kvennakór Garðabæjar en aðalkrafturinn fer í að æfa fyrir veglega vortónleika sem haldnir verða 10. og 11. maí næstkomandi. Að þessu sinni verða þjóðlög í aðalhlutverki og frá hinum ýmsu þjóðlöndum, s.s. Færeyjum, Finnlandi, Armenínu, Bólivíu, Indónesíu og Spáni svo eitthvað sé nefnt. Seinni hluti tónleikanna verður tileinkaður þekktari lögum innlendum og erlendum. Nánari upplýsingar um stað og tímasetningu tónleikann munu birtast hérna á vef Gígjunnar og einnig á vefsetri Kvennakórs Garðabæjar þegar nær dregur.

Árshátíð Kvennakórs Garðabæjar var haldin með stæl
Laugardaginn 21. mars hélt kórinn glæsilega árshátíð í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, með þátttöku langflestra kórkvenna og maka. Stjórn kórsins sá um alla skipulagningu hátíðarinnar, auk þess sem hún mætti galvösk í eldhús staðarins snemma dags til þess að undirbúa hátíðina. Matreiddar voru steikur af lömbum og svínum, með dýrindis fyllingum, sem hreinlega ærðu bragðlauka veislugesta síðar um kvöldið. Í vikunni hafði kórkonum verið úthlutað uppskriftum af forréttum, meðlæti og eftirrétti, sem þær matreiddu heima og mættu með á árshátíðina. Óhætt er að fullyrða að erfitt myndi að “toppa” þessa þríréttuðu veislumáltíð enda mátti heyra vellíðunarstunur veislugesta að henni lokinni.

Öll umgjörð hátíðarinnar var veisluföngunum samboðin, salurinn skreyttur af einstakri alúð og smekkvísi og til að kóróna allt saman var veislustýran, Lísa skvísa, eins og kvikmyndastjarna, sprottin út úr myndum gulláranna, falleg og fjörug í rauðum tjullkjól og stóð sig með þeim eindæmum að líkast til festist hún í faginu. Þegar þessi kór hefur einu sinni uppgötvað sérstaka hæfileika er ekki undankomu auðið. Um það geta “stílistar” kórsins borið svo dæmi sá nefnt.

Engin almennileg árshátíð er án skemmtiatriða en þau voru eins og annað, heimagerð. Af nógu var að taka enda hafa kórkonur séð hver annarri fyrir ærlsafullum, heimatilbúnum skemmtiatriðum í æfingabúðum í Skálholti ár hvert. Nú var komið að því að leyfa mökunum að njóta en auk þess flutti ein kórkona minni karla. Að lokum voru græjurnar þandar og dansað hvíldarlítið fram á nótt.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 107
    • 108
    • 109
    • 110
    • 111
    • 112
    • 113
    • 114
    • 115
    • 116
    • 117
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra