• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Nýr stjórnandi Kvennakórs Akureyrar

22. mars 2009

Æfingar hjá Kvennakór Akureyrar eftir jólafrí hófust 1. febrúar. Ástæðan fyrir að seinna var farið af stað en venjulega var sú að stjórnandinn, Jaan Alavere, lét af störfum og var hann kvaddur með trega og tárum. Í hans stað tók til starfa Daníel Þorsteinsson, píanóleikari og stjórnandi Kirkjukórs Laugalandsprestakalls með meiru.

Með nýjum stjórnanda kom nýtt prógram og  því eins gott að halda sig að verki.  Æfingahelgi var haldin dagana 13. – 14. mars. Vegna sparnaðarsjónarmiða var hún að þessu sinni haldin í heimabyggð en tókst engu að síður mjög vel.

Kökubasarar eru haldnir í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi þrisvar á vorönn og það sem af er hefur gengið mjög vel að selja og hnallþórur kórfélaga hafa runnið út eins og heitar lummur.

Vortónleikar kórsins eru fyrirhugaðir í Tónlistarhúsinu Laugarborg í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 2. maí, nánari fréttir af þeim koma þegar nær dregur.

Vorferð kórsins verður síðan helgina 5. – 7. júní og að þessu sinni verður Neskaupsstaður fyrir valinu. Þar verða haldnir tónleikar 6. júní og sungið í  sjómannadagsmessu 7. júní.

Lesa meira

Kyrjurnar í æfingabúðum 7.-8. mars.

22. mars 2009

Helginni 7.-8. mars eyddu Kyrjurnar austur í Ölfusi, á Hótel Eldhestum. Þar voru þær við æfingar og undirbúning vortónleika kórsins sem haldnir verða um miðja maí nk.
Æfingar hófust strax við komuna austur á laugardagsmorgninum og var unnið fram eftir degi, með matar- og kaffihléum. Einnig var farið í stutta gönguferð um næsta nágrenni og sveitaloftinu með hestalyktinni andað djúpt að sér.
Þegar líða tók að kvöldi voru nóturnar lagðar til hliðar og haldið af stað út í heitu pottana, þar sem þreytan var látin líða úr kroppunum. Dásamlegt var að sjá hrossin hlaupa og kljást í rökkrinu, um það bil sem Venus birtist á vesturhimni.
Mikil gleði og glaumur ríkti svo yfir kvöldverðarborðum. Þema kvöldsins voru hattar og höfuðskraut og skemmtu Kyrjur sér eins og þeim einum er lagið. Að sjálfsögðu brustu þær svo allar í söng undir lok vel heppnaðrar kvöldstundar.
Snemma á sunnudagsmorgninum var haldið áfram að þjálfa röddina og æfa lögin og stóðu æfingar yfir fram eftir degi. Seinnipart dagsins var síðan haldið heim á leið yfir heiðina, eftir mjög skemmtilega og vel heppnaða æfingaferð.

Lesa meira

Geisladiskur Léttsveitarinnar

7. mars 2009
Geislaplatan Léttsveit Reykjavíkur var gefin út þegar kórinn var að ljúka sínu tíunda starfsári og inniheldur upptökur frá ýmsum tónleikum hinnar fjölmennu og fjörugu sveitar.

Eins og nafnið ber með sér eru þetta „léttar konur“ (120 talsins um 7 tonn  alls) sem syngja helst létt lög undir stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. Tónleikarnir fimm sem heyrist frá eru Græna sveiflan, Fljóð og funi, Írska sveiflan, 100 raddir á tíu ára afmæli og Suður um höfin. Ekki spillir að heyra undirtektir áheyrenda milli laga.

Léttsveitin á því láni að fagna að hafa Aðalheiði Þorsteinsdóttur sem píanóleikara og útsetjara og hefur hún útsett fjölda laga fyrir kórinn. Einnig hefur Tómas R. Einarsson verið fastur undirleikari á tónleikum. Svo hafa Rússíbanar, Matti Kallio, Vilma Young  Eggert Pálsson, Einar Kr. Einarsson, Kristinn H. Árnason og Gunnar Hrafnsson leikið með kórnum að ógleymdri Stínu Bongó sem er í Léttsveitinni. 

Þetta er léttur og áheyrilegur diskur sem flestir ættu að hafa gaman af að eiga.

Diskurinn er til sölu hjá lettsveit(hjá)lettsveit.is eða í Léttsveitargemsanum 897 1885 og kostar 1.200.- krónur.    


Lesa meira

Kvennakór Reykjavíkur í æfingabúðum á Skógum

7. mars 2009

Kvennakór Reykjavíkur verður í æfingabúðum að Skógum undir Eyjafjöllum helgina 6. - 8. mars. Þar verður farið ítarlega í vordagskrána og verða stífar æfingar kvölds og morgna. Auk þess verður húllumhæ á laugardagskvöldið með góðum mat, heimatilbúnum skemmtiatriðum, leikjum og dansi. Þar verður örugglega gaman eins og ætíð í æfingabúðum kórsins. Áhugasamir eru svo beðnir um að taka 3. maí frá en þá verður Kvennakór Reykjavíkur með vortónleika sína.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 110
    • 111
    • 112
    • 113
    • 114
    • 115
    • 116
    • 117
    • 118
    • 119
    • 120
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra