• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kvennakór Suðurnesja æfir í Skálholti

23. febrúar 2009
Helgina 7.-8. febrúar síðastliðinn fór Kvennakór Suðurnesja í sínar árlegu æfingabúðir í Skálholti.
Þegar konur höfðu komið sér fyrir í herbergjum og fengið sér ljúffengan hádegisverð hófust æfingar sem stóðu fram undir kvöldmat. Hluta dagsins voru raddæfingar og notuðu konur þá tímann þegar aðrar raddir æfðu ýmist til að fá sér göngutúr í fallegu umhverfinu eða til að slaka á.
Um kvöldið var síðan snæddur gómsætur kvöldverður. Þema kvöldsins var "hálsfestar og höfuðskraut" og voru margar kvennanna fallega skreyttar. Að kvöldverði loknum var haldin kvöldvaka í setustofu og var að vonum mikið fjör, eins og von er á þegar hópur skemmtilegra kvenna kemur saman. Áður en söngæfingar hófust var byrjað á léttum leikfimis- og teygjuæfingum svona rétt til að koma líkamsstarfsseminni aðeins í gang. Svo var sungið allan daginn með matar- og kaffihléum þar til rútan mætti til að flytja hópinn aftur heim um hálfsexleytið. Það var þreyttur en ánægður hópur kvenna sem steig út úr rútunni þegar heim var komið. Helgin var velheppnuð, vel hafði miðað í söngnum auk skemmtunarinnar.

Það er alveg óhætt að mæla með dvöl í Skálholti, aðstaðan er frábær og maturinn ljúffengur og ekki skemmir verðið fyrir. Kvennakór Suðurnesja hlakkar til að mæta þangað aftur að ári.
Lesa meira

Aðildarkórum Gígjunnar er boðið að syngja á Kærleikshátíð 14. febrúar

29. janúar 2009













Aðildarkórum Gígjunnar hefur borist mjög svo skemmtilegt boðsbréf frá Svövu Kristínu Ingólfsdóttur og Bergljótu Arnalds um þátttöku í Kærleikshátíð.

Bergljót Arnalds rithöfundur, leikkona og lagasmiður hefur fengið þá hugmynd að fá alla kóra í Reykjavík, blandaða, karla- og kvennakóra til að koma saman laugardaginn 14. febrúar kl. 18 – 19 til að syngja saman tvö íslensk lög við tjörnina í Reykjavík. Tilefnið er Kærleikshátíð haldin innan Vetrarhátíðar í Reykjavík.

Hér er hluti úr bréfinu frá Bergljótu en öllum formönnum hefur verið sent það í tölvupósti:

Mig langar að bjóða kórnum þínum að taka þátt í hátíð þar sem minnt er á hinar jákvæðu tilfinningar sem tengja okkur saman. Hugmyndin er að leyfa ást og kærleika umleika okkur í einn dag burt séð frá því hvaðan við komum eða hvaða stöðu við gegnum. Hátíðin á að sameina fólk, bæði unga sem aldna, af erlendu bergi brotnu, ólík trúfélög, samkynhneigða, listamenn, iðnaðarmenn, bankamenn, mótmælendur, stjórnvöld o.s.frv. Þetta verður dagur þar sem við öll sameinumst um það sem við viljum og leggjum til hliðar reiðina í garð þess sem við viljum ekki. Þema hátíðarinnar er óður til ástarinnar, samkennd, hlýja sem veitir styrk og gjöf jákvæðra tilfinninga til hvers annars.

Við munum hefja athöfnina á Austurvelli þar sem ýmsir fulltrúar leggja fram fallegar hugsanir. Hjörtu sem grunnskólabörn hafa útbúið verða einnig afhent. Þá verður haldin mínútu þögn þar sem við sendum jákvæða strauma út í samfélagið. Þegar þögnin er liðin leggjum við af stað í Kærleiksgöngu við undirspil brassbands sem leiðir gönguna ásamt kyndilberum. Gangan er hugsuð sem 'meðmælaganga' eða 'meðganga' þar sem við mælum með kærleika, hlýju og ást, og verður gengið hringinn í kringum tjörnina.

Öllum kórum Reykjavíkurborgar býðst að koma niður við tjörn og taka þátt í athöfninni. Kórarnir syngja tvö lög til að fagna kærleikanum og því sem er mikilvægt fyrir okkur öll og tengir okkur saman. Allir kórstjórnendur eru hvattir til að mæta með sínum kór niður við Iðnó. Hörður Áskelsson stjórnandi Mótettukórsins og Schola cantorum mun síðan sjá um að stjórna kórunum fyrir framan Iðnó við tjörnina.

Allar nánari upplýsingar veitir Svava Kristín Ingólfsdóttir í síma 867 7882 tölvupóstfang: svavaki(hjá)simnet.is, en hún er sérlegur aðstoðarmaður minn við að skipuleggja þátttöku kóranna.

Kærleikskveðja,
Bergljót Arnalds

Nánari upplýsingar og dagskrá:

Lögin eru Við gengum tvö og Hver á sér fegra föðurland.

Mæting er við Austurvöll kl. 18:00 þar sem hátíðin er sett. Klukkan 18:20 leggur Kærleiksgangan af stað frá Austurvelli og gengur framhjá Dómkirkjunni í átt að tjörninni. Þegar Kærleiksgangan er komin að Vonarstræti aftan við Iðnó skulu kórfélagar fara úr göngunni og safnast saman fyrir framan Iðnó. Fulltrúi frá hátíðinni mun taka á móti ykkur og sýna ykkar hvar kórinn á að standa.

Á meðan Kærleiksgangan gengur hringinn í kringum tjörnina stilla kórarnir sér upp fyrir framan Iðnó. Betra er að vera framarlega í göngunni en aftar, upp á að hafa rúman tíma til að stilla sér upp.

Þegar göngunni lýkur mun Hörður Áskelsson gefa tóninn og kórarnir syngja tvö lög.

Kórinn syngur um klukkan 18:45.

Litur hátíðarinnar er rauður og er mælt með að kórinn mæti í rauðu eða í svörtu og hvítu með eitthvað rautt. Þótt ekki væri nema með rauðan trefil eða vettlinga. Slíkt myndi gefa fallega mynd.

Blys og kerti verða seld á staðnum og mun kertafleyting eiga sér stað í lok athafnar. Fallegt væri ef kórmeðlimir sæju sér fært að halda á kertum svo þeir sjáist betur við athöfnina.

Lesa meira

Skyggnst í líf kvennakórs

26. janúar 2009























Þessa dagana stendur yfir menningarhátíð Vox feminae í Norrænahúsinu. Í Morgunblaðinu í dag má finna eftirfarandi frétt skrifaða af Bergþóru Jónsdóttur blaðamanni.

Kvennakórinn Vox feminae fagnar afmæli sínu með átta daga menningarhátíð. Sýning á ljósmyndum af öllum konunum í kórnum opnuð í Norræna húsinu.

„KÓRINN á fimmtán ára afmæli og ég er búin að láta taka bombumyndir af hverri einustu konu í kórnum. Við erum búnar að hengja risastór portrett af konunum á sýningu í Norræna húsinu. Myndirnar eru eftir Sigríði Soffíu Gunnarsdóttur. Samfara því ætlum við að fagna í rúma viku með söng og leik, ásamt vinum okkar í listinni.“
Margrét Pálmadóttir talar og kórinn er kvennakórinn Vox feminae. „Í vor kemur svo út bókin da capo, með ljósmyndunum og ágripi af sögu kórsins.“

Ekki tími til að gefast upp
Bókin hefur verið nokkurn tíma í undirbúningi og myndatökur fyrir hana hafa staðið í ár. Hugmyndin að hátíðinni, sem hefst á sunnudaginn, kviknaði hins vegar ekki fyrr en um jólin að sögn Margrétar. „Í desember fannst mér orðið þungt yfir konunum í kórnum og margar þeirra hafa misst vinnuna. Við fórum í söngferð til Berlínar, og aðeins önnur hver kona gat komið með. Þess vegna datt mér í hug að efna til hátíðar, sem yrði innri hátíð kórsins þar sem við gleðjumst með góðum vinum. Þetta er ekki tími til að gefast upp.“
Sýningin var opnuð í gær kl. 16 í kjallara Norræna hússins, við söng kvennanna og leik gesta og leynigesta, en í dag hefst vikulöng dagskrá á sama stað með stuttum tónleikum, þar sem kórinn og gestir hans koma fram. Hátíðinni lýkur á sunnudaginn.

„Það gefa allir vinnu sína og með þessu erum við fyrst og fremst að segja: Konur, við stöndum með ykkur. Það finnst mér fallegt. Ég veit ekki hvernig þetta gerðist á svona stuttum tíma, en allt hefur gengið upp.“

Einstaklingurinn skiptir máli
Margrét segir að konurnar hafi hver um sig séð um að ramma sína mynd inn á þann hátt sem þær vildu. Sumir hafi þó spurt hvers vegna hún hafi viljað láta mynda einstaklingana, en ekki kórinn í heild sinni. „Það halda svo margir að í kór skipti einstaklingurinn ekki máli. En hann skiptir öllu máli. Hann ber uppi nafn kórsins og öll þau verk sem samin eru fyrir okkur.“

Eftir hundrað ár
Vox feminae er skipulagður vel fram í tímann og í vor heldur kórinn tónleika með madrigölum og ástarljóðum ásamt Snorra Erni Snorrasyni gítarleikara og stefnir að þátttöku á Myrkum músíkdögum að ári. „Við eigum orðið mikið af skemmtilegum verkum fyrir kvennakór og það skemmtilegasta og merkilegasta sem við gerum er að láta útsetja og semja fyrir okkur.“

Margrét kveðst spyrja sig hvað sé fallegt við kórstarfið og segir það ekki bara samfélagslega þáttinn. „Eftir hundrað ár verður sennilega til stabbli af kórverkum fyrir kvennakór í Tónverkamiðstöðinni, sem var ekki til þegar við byrjuðum. Og það eru þúsundir kerlinga út um allt land að syngja í kórum. Gígjan er samfélag allra íslenskra kvennakóra og við köllum það eftir fyrsta íslenska kvennakórnum. Það gæti einhver skrifað doktorsritgerð um sögu kvennakóranna í landinu. En nú er tækifærið, þessa átta daga sem hátíðin okkar stendur, til að skyggnast inn í líf kvennakórs.“

Heimild: Morgunblaðið 26. janúar 2009

Dagskrá menningarhátíðar Vox feminae.

Lesa meira

Menningarhátíð og ljósmyndasýning Vox feminae í Norræna húsinu 25. janúar - 1. febrúar

15. janúar 2009

Kvennakórinn Vox feminae var stofnaður haustið 1993 og fagnaði allt síðastliðið ár 15 ára afmæli sínu með ýmsum hætti.

Lokaverkefni afmælisársins er væntanleg bók, „da capo“ sem þýðir frá upphafi. Bókin, sem kemur út á alþjóðlegum degi bókarinnar þann 23. apríl næstkomandi, inniheldur ávörp, erindi og ágrip af sögu kórsins.

Ljósmyndir Sigríðar Soffíu Gunnarsdóttur eru þó meginefni bókarinnar og er hverri og einni söngkonu kórsins tileinkuð opna í bókinni, þar sem staldrað er við „portrait“ mynd af söngkonunni og minningarbrot, einskonar andartak í ljósi.

Margrét Jóhanna Pálmadóttir, stofnandi og stjórnandi kórsins frá upphafi, á þessa fallegu hugmynd sem gefin verður út hjá Bjarti bókaforlagi.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar stendur Vox feminae fyrir menningarhátíð í Norræna húsinu dagana 25. janúar til 1. febrúar.

Þar verða portrait myndirnar til sýnis auk þess sem fjöldi lista- og fræðimanna mun glæða hátíðina lífi hvern dag.


Dagskrá hátíðarinnar:

Sunnudagur 25. janúar kl. 16
Setning hátíðar og opnun ljósmyndasýningar
Ljósmyndari: Sigríður Soffía Gunnarsdóttir
Fram koma: Vox feminae, Inga Backman, Hjörleifur Valsson og Arnhildur Valgarðsdóttir.

Mánudagur 26. janúar kl. 17:17
Von og vor
Fram koma: Vox feminae, Stúlknakór Reykjavíkur, Hanna Björk Guðjónsdóttir og Ástríður Haraldsdóttir.

Þriðjudagur 27. janúar kl. 17:17
Con Fuoco – eldfim dagskrá
Fram koma: Vox feminae, Gospelsystur Reykjavíkur, Agnar Már Ólafsson, Stefán S. Stefánsson og Gunnar Hrafnsson.

Miðvikudagur 28. janúar kl. 20
Norræn dagskrá – Sigling frá austri til vesturs
Fram koma: Vox feminae og Arnhildur Valgarðsdóttir.
Jónas Ingimundarson píanóleikari leiðir áheyrendur inn í töfra tónlistarheimsins.

Fimmtudagur 29. janúar kl. 20
Sö(n)gur – Frá hjartans rótum
Fram koma: Söngkonur úr hópi kórkvenna fyrr og nú flytja texta og söngperlur. Undirleikari Antonía Hevesi.

Föstudagur 30. janúar kl. 20
Sö(n)gur – Frá hjartans rótum
Fram koma: Söngkonur úr hópi kórkvenna fyrr og nú flytja texta og söngperlur. Undirleikari Antonía Hevesi.

Laugardagur 31. janúar kl. 16
Vínarljóð, óperettur og aríur
Fram koma: Vox feminae, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir

Sunnudagur 1. febrúar kl. 16
Ave María – trúarleg tónlist
Fram koma: Vox feminae, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir.
Auður Ólafsdóttir listfræðingur flytur erindið Móðirin mild og hrein.

Aðgangur á menningarhátíð Vox feminae er ókeypis alla dagana.    
Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 111
    • 112
    • 113
    • 114
    • 115
    • 116
    • 117
    • 118
    • 119
    • 120
    • 121
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra