• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleikana "Valsar og Vínarljóð" í Hafnarborg Hafnarfirði 9. maí

29. apríl 2008

Tónleikarnir bera yfirskriftina Valsar og Vínarljóð og eins og nafnið gefur til kynna verður þar flutt tónlist sem á rætur sínar að rekja til Vínarborgar, svo sem hluti af Liebeslieder Waltzer op. 52 eftir Johannes Brahms, auk annarra skemmtilegra vínarljóða. Einnig verða fluttir óperukórar úr þekktum óperum eftir Mozart, Rossini, Verdi og fleiri. Yfirbragð tónleikanna verður í léttum dúr og mun andi Vínarborgar svífa yfir vötnum. Listrænn stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Verð aðgöngumiða í forsölu er kr. 2.500 og eru miðar til sölu hjá kórfélögum og í síma 863 4404. Ef keypt er við innganginn kostar miðinn kr. 3.000. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30.

Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði föstudaginn 9. maí kl. 20:30
Flytjendur á tónleikunum eru auk Vox feminae sópransöngkonurnar Auður Gunnarsdóttir og Xu Wen, Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari. Listrænn stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Vox feminae fagnar nú sínu fimmtánda starfsári og hefur af því tilefni staðið fyrir veglegri og glæsilegri tónleikadagskrá, sem hófst með frumflutningi stórverksins Stabat Mater eftir John A. Speight í nóvember. Á komandi hausti er síðan fyrirhugað samstarf með karlakórnum Fóstbræðrum þar sem kórarnir munu stilla saman strengi sína á sameiginlegum tónleikum, en þeir tónleikar munu marka lok afmælisárs Vox feminae.
Lesa meira

Karlakórinn Jökull lá í leyni

26. apríl 2008
Sjöunda landsmót Gígjunnar stendur nú sem hæst á Hornafirði en þar eru samankomnir þrettán kvennakórar hvaðanæva að af landinu. Mótið var sett í gærkveldi í íþróttahúsi staðarins og eftir að sárasta hungrið hafði verið satt með léttum málsverði var lagt í óvissuferð. Í kvöld er hátíðarkvöldverður og heimatilbúin skemmtidagskrá. Á morgun klukkan 14 er svo komið að hápunktinum er kórarnir kynna afrakstur vinnuhópa og syngja saman landsmótslagið. Í Fréttablaðinu í dag kom skemmtileg frétt um mótið, lesið nánar um landsmótsfjörið í þessari grein.Hátt í fjögur hundruð syngjandi konur eru saman komnar á Höfn í Hornafirði þessa helgi svo þar er gleði og gaman
Hátt í fjögur hundruð syngjandi konur eru saman komnar á Höfn í Hornafirði þessa helgi svo þar er gleði og gaman. Gígjan, landssamband kvennakóra heldur landsmót sitt jafnan á þriggja ára fresti og þetta er hið sjöunda í röðinni. Nú er komið að Kvennakór Hornafjarðar að taka á móti söngsystrum hvaðanæva að af landinu. Mótið var sett í gærkveldi í íþróttahúsi staðarins og eftir að sárasta hungrið hafði verið satt með léttum málsverði var lagt í óvissuferð. Þar sem nú er kominn laugardagur er óhætt að upplýsa að haldið var í fjallasali Hoffells og þar tóku eiginmenn heimakórsins á móti hópnum með sínum einstaka hætti. Ekki nóg með það, heldur lá Karlakórinn Jökull í leyni en spratt alskapaður fram úr fylgsnum sínum og hóf upp söng svo undir tók í hinum hornfirskum fjöllum. Ungir harmoníkusnillingar komu hinum langt að komnu gestum líka á óvart. Það er ljóst að kvennakórskonur á Höfn vefja körlum héraðsins um fingur sér og fá þá til liðs þegar á þarf. Það staðfestir Ragnheiður Rafnsdóttir formaður undirbúningsnefndar. "Hér leggjast allir á eitt til að mótið takist sem best," segir hún. "Kórkonur hafa allar verið virkar í undirbúningnum og karlarnir séð um pallasmíði, flutning á húsgögnum og mörgu fleiru. Bærinn lánar húsnæði til æfinga, samsöngs og veisluhalda og hótelpláss á Höfn og í Nesjum er það ríkulegt að kórkonur eiga að njóta þar svefns í uppábúnum rúmum. Svo var búið að leggja inn beiðni fyrir góðu veðri. Hver og ein hafði sinn hátt á því og vitað er að séra Einar á Kálfafellsstað var beðinn fyrir skilaboð til almættisins." Eitt af nýmælum mótsins er að hver kona í kórunum þrettán gat valið sér vinnuhóp. Þeir eru fjórir talsins og skiptast í þjóðlög, dægurlög, ryþmískan söng og erfiðari verk. Hóparnir eru að störfum fram eftir degi í dag en síðdegis er komið að sameiginlegri dagskrá í íþróttahúsinu, þar sem hver kór flytur tvö lög sem hann hafði í farteskinu. Í kvöld er hátíðarkvöldverður og heimatilbúin skemmtidagskrá. Á morgun klukkan 14 er svo komið að hápunktinum er kórarnir kynna afrakstur vinnuhópa og syngja saman landsmótslagið. Það var samið sérstaklega fyrir mótið af Þóru Marteinsdóttur (Marteins Hunger Friðrikssonar) við ljóð staðarskálds Hornafjarðar, Guðbjartar Össurarsonar og nefnist Þegar sólin skín. Undirleik annast stórhljómsveit Jóhanns Moráveks sem sköpuð var fyrir þennan viðburð. Þess má geta að ókeypis er á tónleikana bæði í dag og á morgun. Heimild: Fréttablaðið, laugardaginn 26. apríl 2008 (bls. 26-27) gun(hjá)frettabladid.is
Lesa meira

Vortónleikar Kyrjanna „Kímni og konfekt“ verða haldnir í Seltjarnarneskirkju 17. maí

23. apríl 2008

Kyrjurnar eru búnar að hafa í nóg að snúast á þessari önn. Þær hófu æfingar snemma á nýju ári og skelltu sér í æfingarbúðir í febrúar. Þær eru einnig á fullu að undirbúa ferð sína á landsmótið á Hornafirði sem verður um næstu helgi. Vortónleikar Kyrjanna verða í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 17. maí kl. 17. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdótir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir. Miðar verða seldir í forsölu hjá kórkonum á kr. 1500. Miðasala verður einnig við innganginn, almennt verð 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Einnig er hægt að panta miða með því að hringja í símanúmerið: 891 7449. Lesið nánar um starfsemi Kyrjanna í þessari frétt.

Hér eru nokkrir fréttapunktar frá Kyrjunum
Kyrjurnar byrjuðum að æfa fyrir vorið strax í upphafi nýs árs eða 9. janúar. Við höfum fyrst og fremst verið að vinna í tónlistinni sem við munum flytja á vortónleikunum okkar. Að sjálfsögðu höfum við líka verið að vinna í lögunum sem eru sameiginleg á kóramótinu á Höfn í Hornafirði. Við fórum í æfingabúðir á Hótel Eldhesta sem er rétt austan við Hveragerði helgina 16. – 17. febrúar. Þar var fín aðstaða og unnum við vel og gerðum okkur að sjálfsögðu glaðan dag líka. Í mars skellti hluti kórsins sér í Íslensku óperuna til sjá La Traviata og skemmti sér vel. Nú styttist í kóramótið á Höfn sem við ætlum að taka þátt í og er komin heilmikil tilhlökkun í okkur. Svo síðast en ekki síst þá verða vortónleikarnir okkar í Seltjarnarneskirkju laugardaginn 17. maí kl. 17. Stjórnandi Kyrjanna er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdótir og píanóleikari er Halldóra Aradóttir sem jafnframt hefur útsett lög fyrir okkur. Yfirskrift þessara tónleika verður Kímni og konfekt. Miðar verða seldir í forsölu hjá kórkonum á kr. 1500. Miðasala verður einnig við innganginn, almennt verð 2.000 kr. en 1.500 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Einnig er hægt að panta miða með því að hringja í símanúmerið: 891 7449. Börn 12 ára og yngri fá frítt inn.
Lesa meira

Lillukórinn syngur vortónleika sína 1. maí

21. apríl 2008
Lillukórinn heldur sína árlegu vortónleika í Félagsheimilinu á Hvammstanga fimmtudaginn 1. maí, kl. 20:30. Kórstjóri er Ingibjörg Pálsdóttir og undirleikari og stjórnandi er Guðjón Pálsson. Efnisskráin er fjölbreytt, bæði innlend og erlend lög. Aðgangseyrir kr. 2000 og verða miðar seldir við innganginn. Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð að hætti Lillukórsins í hléi.

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 126
    • 127
    • 128
    • 129
    • 130
    • 131
    • 132
    • 133
    • 134
    • 135
    • 136
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra