• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Kvennakór Garðabæjar annaðist messusöng í Vídalínskirkju á konudaginn

25. febrúar 2008
Að venju var Vídalínskirkja í Garðabæ þéttsetin á konudag sem í ár bar upp á 24. febrúar. Talsverðar tilfæringar þurfti til þess að allir kirkjugestir fengju sæti en það tókst þó að lokum. Eins og fyrri ár var helgihaldið í höndum kvenna. Kvennakór Garðabæjar leiddi lofgjörðina undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur og píanisti var Sólveig Anna jónsdóttir. Auk hefðbundins messusöngs flutti kórinn tvö verk af væntanlegri efnisskrá vortónleika sem að þessu sinni verða í Kristskirkju þann 20. apríl. Kórinn söng 1. kafla úr Stabat Mater eftir Pergolesi og Nigra Sum eftir Pablo Casals.

Kvennakór Garðabæjar er það ljúft að annast messusöng við árlega konudagsmessu í Vídalínskirkju
Eins og fyrri ár var helgihaldið í höndum kvenna; Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónaði fyrir altari ásamt fjórum djáknum, þeim Nönnu Guðrúnu Zöega, Lilju Hallgrímsdóttur, Jóhönnu Kristínu Guðmundsdóttur og Jóhönnu Guðrúnu Ólafsdóttur. Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, predikaði. Tveir stúlknahópar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar sungu undir stjórn Andra Bjarnasonar. Að guðsþjónustu lokinni buðu félagar úr Lionsklúbbum Garðabæjar upp á ljúffenga súpu, brauð og álegg sem kirkjugestir gerðu góð skil. Loks sýndu konur úr Garðabæ glæsilegan fatnað frá versluninni MB undir stjórn Maríu Baldursdóttur, eiganda verslunarinnar. Kvennakór Garðabæjar er það ljúft að annast messusöng við árlega konudagsmessu í Vídalínskirkju og sýna m.a. með því þakklætisvott fyrir ómetanlega æfingaaðstöðu sem kórinn hefur í safnaðarheimili kirkjunnar. Kórinn sendir Sr. Jónu Hrönn sínar bestu kveðjur og þakkar henni og Ásdís Höllu fyrir falleg og hlý orð í garð kórsins. Kveðjur fá allir aðrir sem tóku þátt í þessari einkar ljúfu dagstund á fögrum sunnudagsmorgni í Garðabæ.
Lesa meira

Kvennakór Suðurnesja er 40 ára nú um þessar mundir og syngur afmælistónleika sína 23. febrúar í Reyk

20. febrúar 2008
Kvennakór Suðurnesja heldur upp á 40 ára afmæli sitt með glæsilegum tónleikum næstkomandi laugardag, 23. febrúar, en kórinn var stofnaður 22. febrúar 1968 og er elsti starfandi kvennakór á landinu. Á tónleikunum munu einsöngvararnir Bjarni Thor Kristinsson og Dagný Þórunn Jónsdóttir koma fram auk þess sem Léttsveit Tónlistarskólans í Reykjanesbæ leikur með kórnum eftir hlé. Þær konur sem voru á Landsmótinu í Reykjanesbæ 2002 muna eflaust eftir Léttsveitinni, en hún lék á skemmtun sem haldin var á laugardagskvöldinu. Stemningin var þvílík að konur voru farnar að dansa uppi á borðum, þannig að það má búast við frábærri skemmtun á laugardaginn. Miðaverð er kr. 2000 og verður miðasala við innganginn. Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi.

Kvennakór Suðurnesja heldur upp á 40 ára afmæli sitt með glæsilegum tónleikum næstkomandi laugardag, 23. febrúar, en kórinn var stofnaður 22. febrúar 1968 og er elsti starfandi kvennakór á landinu. Á tónleikunum munu einsöngvararnir Bjarni Thor Kristinsson og Dagný Þórunn Jónsdóttir koma fram auk þess sem Léttsveit Tónlistarskólans í Reykjanesbæ leikur með kórnum eftir hlé. Þær konur sem voru á Landsmótinu í Reykjanesbæ 2002 muna eflaust eftir Léttsveitinni, en hún lék á skemmtun sem haldin var á laugardagskvöldinu. Stemningin var þvílík að konur voru farnar að dansa uppi á borðum, þannig að það má búast við frábærri skemmtun á laugardaginn. Miðaverð er kr. 2000 og verður miðasala við innganginn. Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi.Tónleikar Kvennakórs Suðurnesja verða í sal íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ laugardaginn 23. febrúar kl. 17.00
Kvennakór Suðurnesja var stofnaður árið 1968 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á þessu ári. Kórinn er jafnframt elsti starfandi kvennakór á landinu. Starf kórsins er í miklum blóma um þessar mundir. Kórkonur héldu nýlega utan til Ítalíu þar sem þær tóku þátt í alþjóðlegri kórakeppni. Þær stóðu sig með prýði og komu heim með viðurkenningu í gullflokki í farteskinu. Næstkomandi laugardag ætlar kórinn að halda glæsilega afmælistónleika ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Á efnisskránni er tónlist sem kemur úr öllum áttum. Fyrir hlé flytur kórinn sýnishorn af þeim lögum sem hann söng í keppninni á Ítalíu en þar tók kórinn þátt í flokki kvennakóra sem fluttu þjóðlög frá eigin landi. Einnig frumflytur kórinn lag ásamt Dagnýju Þórunni Jónsdóttur sópransöngkonu sem jafnframt er stjórnandi kórsins. Þetta er lag eftir Eirík Árna Sigtryggsson en hann hlaut menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súluna, nú nýverið. Hann stjórnar kórnum í þessu verki sínu sem hann samdi sérstaklega fyrir Dagný og kórinn. Með kórnum verður líka einn þekktasti bassasöngvari þjóðarinnar, Suðurnesjamaðurinn Bjarni Thor Kristinsson og mun hann syngja einsöng með kórnum auk þess sem hann og Dagný syngja tvo dúetta. Í tveimur lokalögunum fyrir hlé fær kórinn síðan til liðs við sig fjölmargar konur sem hafa sungið í kórnum á þessum 40 árum, en eru ekki starfandi núna. Píanóleikari er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Eftir hlé kveður síðan við allt annan tón. Þá mun kórinn bregða sér í djass-sveiflu og fá til liðs við sig eina bestu big-band hljómsveit landsins, Léttsveit Tónlistarskólans í Reykjanesbæ. Stjórnandi hennar er Karen Janine Sturlaugsson. Það er engin spurning að þetta verður frábær skemmtun og ætti enginn að láta þessa tónleika framhjá sér fara, en aðeins verður um þessa einu tónleika að ræða. Tónleikarnir verða haldnir í sal Íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ laugardaginn 23. febrúar 2008 kl. 17. Miðaverð er kr. 2000 og verður miðasala við innganginn. Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi.
Lesa meira

Kórstjóri Kvennakórs Kópavogs kennir kínverska matseld

20. febrúar 2008
Natalíu Chow Hewlett kórstjóra Kvennakórs Kópavogs er margt til lista lagt. Síðastliðið haust fór hún að kenna kórkonum kínverska grænmetismatargerð og hafa námskeiðin hennar algjörlega slegið í gegn og eru öllum opin. Ef þú hefur áhuga á matreiðslunámskeiði þá skaltu lesa þessa frétt.

Viltu ekki skella þér á kínverskt grænmetis-matreiðslunámskeið?
Ég heiti Natalía Chow Hewlett og er kórstjóri hjá Kvennakór Kópavogs. Ég er kínversk og er búin að vera grænmetisæta í sjö ár. Þegar kórinn heldur æfingabúðir koma allar með eitthvað smá á hlaðborð. Ég fer með BBQ tofu og það klárast alltaf hjá kórkonum. Kórkonurnar báðu mig um að kenna sér hvernig eigi að búa til svona mat þannig að ég byrjaði að halda kínversk grænmetismatreiðslunámskeið í haust. Ef þú hefur áhuga á að búa til bragðgóðan og hollan grænmetismat, skalt þú ekki hika við að hafa samband við mig. Kínverska grænmetismatreiðslunámskeiðið mitt hefur slegið í gegn!! Þú getur lesið nánar um þetta spennandi námskeið á þessu vefsetri; http://englakor.googlepages.com/annad en þar er m.a. að finna dagsetningar á næstu námskeiðum og skráningareyðublað. Kveðja, Natalía nataliachow89(hjá)gmail.com
Lesa meira

Fjölís

18. febrúar 2008

Fjölís eru heildarsamtök höfundarréttarfélaga í landinu samkvæmt 15. gr. höfundalaga um samningskvöð. Eitt meginhlutverk Fjölís er að annast hagsmunagæslu fyrir höfunda og útgefendur með samningum sem heimila takmarkaða ljósritun úr verkum þeirra gegn endurgjaldi. Aðildarkórar Gígjunnar semja beint við Fjölís. Fjölís hefur gert samningsfyrirmynd, sem kynnt var fyrir formönnum aðildarkóra Gígjunnar á landsmóti í Hafnarfirði, árið 2005. Hann er afturvirkur frá árinu 2004 skv. lögum og gat Gígjan ekki haft nein áhrif þar á. Ef kór er stofnaður eftir 2004, þá greiðir hann einungis frá stofnun kórsins.

Greiðslur til Fjölís renna m.a. í Tónlistarsjóð II hjá STEF og geta aðildarkórar Gígjunnar, sem gert hafa samning við Fjölís, sótt um styrk í þennan sjóð. Sjóðurinn styrkir m.a. tónlistarútgáfu.

Margir kórar hafa gengið frá samning við Fjölís
Margir aðildarkórar Gígjunnar hafa þegar gert samning við Fjölís og hvetur stjórn Gígjunnar aðra aðildarkóra sína til að kynna sér málin frekar. Nánari upplýsingar er að finna á http://www.fjolis.is/ eða hjá Elínu Helgadóttur fulltrúa Fjölís í síma 511 2212.

Samningsfyrirmynd Fjölís
Samningsfyrirmynd gerð í samvinnu Fjölís og Gígjunnar – landsssambands íslenskra kvennakóra, dags. 26. apríl 2006. Samningur um ljósritun og hliðstæða eftirgerð í kórum (Samningurinn er hliðstæður samningsfyrirmynd sem gerð var í samvinnu Fjölís og Sambands íslenskra karlakóra dags. 14. október 2004.)

I. Aðild

1. gr. Aðilar samnings þessa eru annars vegar XXX, kt. xxxxxx-xxxx, heimilisfang XXX, vegna kórfélaga og starfsmanna kórsins hér eftir nefndur leyfishafi, og Fjölís, kt. 491285-0289, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, hagsmunafélag samtaka, sem koma fram fyrir hönd rétthafa að verkum sem njóta höfundaréttarverndar og nýtt eru með ljósritun og annarri hliðstæðri eftirgerð rita, hins vegar. Samningur þessi er efnislega samhljóða öðrum samningum Fjölís við kóra sem byggður er á samningsfyrirmynd gerðri í samvinnu Fjölís og Gígjunnar – Landssambands íslenskra kvennakóra, dags. 26. apríl 2006.

II. Gildissvið samnings

2. gr. Samningurinn tekur til ljósritunar og annarrar hliðstæðrar eftirgerðar verka, sem höfundaréttarverndar njóta og sem fram fer innan vébanda leyfishafa, sbr. 1. gr., og Fjölís fer með rétt yfir. Afritun á glærur og skyggnur telst eftirgerð hliðstæð ljósritun í samningi þessum. Samningurinn tekur ekki til fjölföldunar með öðrum hætti, svo sem með upptöku verka á hljóðrit, myndbönd eða kvikmyndir, eða til eintakagerðar í véllæsilegu formi. Samningur þessi tekur því aðeins til erlendra verka að Fjölís hafi aflað sér umboðs til að fara með réttindi, sem samningur þessi tekur til, hér á landi, með lögum eða með samningum við samtök í viðkomandi landi og þau samtök njóti viðurkenningar í heimalandi sínu og innan IFRRO (International Federation of Reproduction Rights Organizations). Skrá yfir slík umboð Fjölís fylgir samningi þessum, merkt Fylgiskjal A.

3. gr. Samningur þessi skerðir ekki þann rétt til eintakagerðar, sem felast kann í einstökum ákvæðum II. kafla höfundalaga nr. 73/1972. Samningur þessi tekur til útgefinna rita. Með ritum er í samningi þessum átt við hina efnislegu formheild eða eintak verks, svo sem bók, bækling, tímaritshefti, tölublað dagblaðs og nótnahefti. Með útgefnu riti er í samningi þessum átt við eintök af bókmenntaverkum, listaverkum, ljósmyndum, nótum, sem birtar hafa verið skriflega, leiksviðsverkum, sem birt hafa verið skriflega, svo og skrár, töflur og sambærileg verk á prenti. Hver einstakur höfundur getur þó lagt bann við slíkri fjölföldun og ber Fjölís þá jafnframt að tilkynna leyfishafa um þá ákvörðun.

4. gr. Hver nótnasíða jafngildir samkvæmt samningi þessum fimm blaðsíðum, hver dagblaðssíða þremur blaðsíðum, hver ljóðasíða þremur blaðsíðum og hver síða leiksviðsverks tveimur blaðsíðum. Ef texti fylgir nótum á sömu síðu skal greiða sérstaklega fyrir textann eftir því sem við á. Fyrir hverja mynd, teikningu eða uppdrátt skal greiða sérstaklega til viðbótar greiðslur fyrir texta, sem á síðu er, enda sé ekki aðeins um myndatexta að ræða. Með fjölfaldaðri síðu samkvæmt samningi þessum er átt við síðu af stærðinni A4. Sé fjölfaldað á stærri síðu en A4 reiknast hver byrjuð síða sem jafngildir síðu af stærðinni A4 sem heil fjölfölduð síða. Hver glæra jafngildir 50 A4 síðum og hver skyggna 100 A4 síðum. Fyrir hverja ljósritaða síðu úr bók, tímariti eða sambærilegu verki skal greiða sérstaklega, jafnvel þótt tvær síður eða fleiri séu á sama ljósriti.

5. gr. Fjölföldun samkvæmt samningi þessum er eingöngu heimil til viðbótar eða fyllingar öðru efni en er ekki ætlað að koma í stað útgefinna rita sem gera má ráð fyrir að leyfishafi eigi eða hafi aðgang að. Aðeins má fjölfalda stutta þætti úr hverju riti og 20% hið mesta en þó aldrei meira en 30 blaðsíður. Fjölföldun er aðeins heimil til bráðabirgðanota og því ekki til geymslu í birgðum. Samningurinn heimilar ekki fjölföldun sem talist getur útgáfa og gera skal útgáfusamning um. Fjölföldun efnis til dreifingar meðal almennings telst útgáfa og er því ekki leyfileg.

III. Til hverra nær heimildin og hvernig

6. gr. Samkvæmt samningi þessum er kórfélögum og starfsmönnum leyfishafa heimil fjölföldun, til nota við starfsemi leyfishafa, með þeim takmörkunum sem í samningnum greinir. Við fjölföldun skal nota þau tæki sem til eru innan vébanda leyfishafa. Fjölföldun utan vébanda leyfishafa er einungis heimil ef tæknilegar aðstæður krefjast þess eða ef sá sem annast fjölföldun fyrir leyfishafa hefur gildandi samning við Fjölís.

7. gr. Tilmælum skal beint til starfsmanna og kórfélaga leyfishafa um að í hvert skipti sem ljósrit er gert skuli jafnframt taka ljósrit af þeirri síðu viðkomandi verks, sem veitir upplýsingar um útgefanda, höfund og annað slíkt eða tryggt með öðrum hætti að upplýst sé um útgefanda, útgáfustað, útgáfuár, höfund o.þ.h.

IV. Gjaldskyldur blaðsíðufjöldi og endurgjald

8. gr. Gjaldskyldur fjöldi fjölfaldaðra eintaka á verkum á hvern kórfélaga og starfsmann leyfishafa, sbr. 1. gr. samnings þessa, eru 30 eintök nótna- og ljóðasíðu á ári, sbr. 4. gr. samningsins. Fjöldi kórfélaga/starfsmanna er XXX. Fyrir lögmæta fjölföldun samkvæmt samningi þessum greiðir leyfishafi kr. 883 á hvern kórfélaga/starfsmann á ári. Gjaldið er verðtengt á þann hátt að það tekur breytingum frá 1. október 2004 til hvers gjalddaga í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs á tímabilinu. Vísitala neysluverðs í október 2004 er 237,4 stig.

9. gr. Fjöldi kórfélaga og starfsmanna sem lagður er til grundvallar við útreikninga á fjölda gjaldskyldra eintaka tekur mið af tilkynningu leyfishafa til Sambands íslenskra karlakóra um fjölda kórfélaga/starfsmanna á vegum kórsins.

V. Gildistími og endurskoðun samnings

10. gr. Samningur þessi gildir frá 1. september 2004. Hvor aðili getur sagt samningnum upp með skriflegri tilkynningu til hins með 6 mánaða fyrirvara miðað við 1. september ár hvert (það er fyrir 1. mars ár hvert), í fyrsta lagi árið 2009.

11. gr. Hvorum aðila um sig er heimilt að krefjast endurskoðunar á samningnum með tilliti til verulegra breytinga á fjölda kórfélaga/starfsmanna (a.m.k 10% fjölgun eða fækkun) sem samningurinn nær til. Skal ósk þar að lútandi koma fram fyrir 1. apríl ár hvert og skal endurskoðunin gilda frá 31. desember það ár. Endurskoðunar á grundvelli þessa ákvæðis má krefjast í fyrsta lagi 1. janúar 2008.

VI. Gjalddagar

12. gr. Leyfisgjald kemur í fyrsta sinn til greiðslu fyrir tímabilið 1. september 2004 – 31. ágúst 2006 við undirritun samningsins og þaðan í frá 15. janúar ár hvert. Verði dráttur á greiðslu á réttum gjalddaga skal greiða dráttarvexti í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og skulu þeir vera þeir sömu og Seðlabanki Íslands ákveður samkvæmt 6. gr. laganna.

VII. Utanaðkomandi kröfur

13. gr. Fjölís ábyrgist allar kröfur, sem kunna að koma frá handhöfum höfundarréttar, eða höfundarréttarsamtökum sem standa utan Fjölís og réttmætt tilkall eiga til greiðslu fyrir ljósritun verndaðra rita.

VIII. Kynning

14. gr. Leyfishafi mun kynna efni samnings þessa fyrir félagsmönnum og starfsmönnum sínum með reglubundnum hætti, þ.e. þá þætti hans sem lúta að því hvaða leyfi Fjölís veitir til eftirgerðar. Ennfremur að birta helstu reglur við hverja ljósritunarvél. Hafa skal samráð við Fjölís um framkvæmd kynningarinnar.

IX. Könnun

15. gr. Hvor aðili um sig í samráði við hinn getur óskað eftir að fram fari könnun á samningstímanum, á umfangi fjölföldunar á vegum leyfishafa sem samningur þessi nær til og skiptingu hennar eftir efnisflokkum, uppruna og löndum.

16. gr. Allar tilkynningar milli aðila samkvæmt samningi þessum skulu sendar með bréfi í pósti eða faxi. Viðtakendur tilkynninga eru: A. Fjölís, Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, símbréf 511 22 13 B. XXX, XXX, símbréf XXX Ákvæði til bráðabirgða Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 8. gr. eru aðilar sammála um að fram til 31. ágúst 2007 skuli greiða eftirfarandi gjald fyrir lögmæta fjölföldun á hvern kórfélaga/starfsmann leyfishafa á ári:
Fyrir tímabilið 1. sept. 2004 – 31. ágúst 2005 kr. 600 á hvern kórfélaga
Fyrir tímabilið 1. sept. 2005 – 31. ágúst 2006 kr. 700 á hvern kórfélaga
Fyrir tímabilið 1. sept. 2006 – 31. ágúst 2007 kr. 800 á hvern kórfélaga

Framangreindar fjárhæðir eru verðtengdar á þann hátt að þær taka breytingum frá 1.október 2004 til hvers gjalddaga í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs á tímabilinu. Vísitala neysluverðs í október 2004 er 237,4 stig. Falli öll starfsemi kórsins niður eitt tímabil frá 1. september til 31. ágúst, fellur niður árgjald vegna tímabilsins, sem greiðast á 15. janúar á því tímabili, enda berist tilkynning til Fjölís þar um frá kórnum fyrir 1. nóvember sama ár og starfsemin fellur niður.
XXX, 000000-0000 2006 F.h. Fjölís
XXX, 000000-0000 F.h. Nafn á kór

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 131
    • 132
    • 133
    • 134
    • 135
    • 136
    • 137
    • 138
    • 139
    • 140
    • 141
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra