• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Vox feminae á vængjum söngsins um Norðurland

5. júlí 2007
Helgina 2. - 3. júní fór Kvennakórinn Vox feminae á vængjum söngsins um Norðurland undir dyggri forystu Margrétar J. Pálmadóttur kórstjóra. Ferðin gekk í alla staði mjög vel og lék veðurblíðan við kórfélagana í ferðalaginu. Vox feminae hitti Kvennakór Akureyrar og vill þakka þeim frábærar móttökur og skemmtilega viðkynningu. Lesið ferðasöguna frá kórnum hér.Tónleikar í Húsavíkurkirkju
Sunnudagurinn vakti kórkonur með sól og blíðu í Sveinbjarnargerði við austanverðan Eyjafjörð. Eftir morgunverð var ekið áleiðis til Húsavíkur með magnaðri viðkomu í kirkjunni á Ljósavatni. Á Ásgarðsveginum á Húsavík tóku öðlingarnir Pálmi Héðinsson og Inga konan hans á móti kórnum að þjóðlegum sið með kaffiveitingum og yndislegu viðmóti. Þá var komið að aðaltilefni ferðarinnar, tónleikum Vox feminae á tónlistarhátíð í Húsavíkurkirkju í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar. Kórinn naut fulltingis þeirra Hjörleifs Valssonar fiðluleikara og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara. Efnisskrá tónleikanna var veglega samsett af fallegum Maríuljóðum, Vínarljóðum og íslenskum samtímaverkum. Stemningin sem skapaðist milli flytjenda og áheyrenda í Húsavíkurkirkju þennan sólbjarta sjómannadag var einstök upplifun sem seint mun líða kórkonum úr minni. Það má með sanni segja að Norðurland hafi skartað sínu fegursta þessa helgi og að Norðlendingar hafi tekið söngfuglunum að sunnan fagnandi og af rausnarskap.
Helgina 2. - 3. júní fór Kvennakórinn Vox feminae á vængjum söngsins um Norðurland undir dyggri forystu Margrétar J. Pálmadóttur kórstjóra. Ferðin gekk í alla staði mjög vel og lék veðurblíðan við kórfélagana í ferðalaginu. Vox feminae hitti Kvennakór Akureyrar og vill þakka þeim frábærar móttökur og skemmtilega viðkynningu. Lesið ferðasöguna frá kórnum hér.Vox feminae hélt tónleika í Akureyrar- og Dalvíkurkirkju
Helgina 2.- 3. júní fór Kvennakórinn Vox feminae á vængjum söngsins um Norðurland undir dyggri forystu Margrétar J. Pálmadóttur kórstjóra. Að morgni laugardagsins sameinuðu Vox feminae og Kvennakór Akureyrar krafta sína og létu ljúfa tóna óma í Akureyrarkirkju. Kórarnir röltu síðan syngjandi um Listagilið og miðbæinn við góðar undirtektir fólks á förnum vegi. Um hádegisbil var haldið til hressingar á Hjalteyri. Seinna sama dag hélt kórinn indæla tónleika í Dalvíkurkirkju. Á efnisskránni voru trúarleg verk ásamt íslenskum og erlendum þjóð- og söngperlum. Þaðan lá leiðin í höfðinglegt kvöldverðarboð hjá heiðurshjónunum í Hlíð í Ólafsfirði.
Lesa meira

Hljómdiskurinn Ave Maria, ljúfir tónar og vandaðir

27. júní 2007
Laugardaginn 23. júní 2007 birtist í Morgunblaðinu gagnrýni um Ave Maria nýjasta hljómdisk Kvennakórsins Vox feminae. Kórnum er stjórnað af Margréti J. Pálmadóttur. Ólöf Helga Einarsdóttir ritaði gagnrýnina og fer fögrum orðum um Vox feminae og þennan nýjasta disk hans. Lesið dóminn í heild sinni hér.Ljúfir tónar og vandaðir
Kvennakórinn Vox feminae syngur lög og ljóð tileinkuð Maríu Guðsmóður auk annarra trúarlegra verka. Höfundar: Bach, Gluck, Mozart, Schubert, Mendelsson-Bartholdy, Franck, Rheinberger, Sigvaldi Kaldalóns, Deutchmann, Þorkell Sigurbjörnsson og Lightfoot. Stjórnandi: Margrét J. Pálmadóttir. Einsöngur: Hanna Björk Guðjónsdóttir. Orgel: Antonía Hevesi. Óbó: Eydís Franzdóttir. Hljóðupptaka og hljóðblöndun: Ólafur Elíasson. Domus vox gefur út 2006. NÝJASTI geisladiskur kvennakórsins Vox feminae, sem leit dagsins ljós fyrir síðustu jól, er tileinkaður Maríu Guðsmóður og ber hið einfalda og fallega nafn Ave Maria. Flutningur kórsins og hljóðfæraleikaranna er allur hinn vandaðasti og efnisvalið gott, bæði með tilliti til fjölbreytileika og þægilegrar áheyrnar. Hanna Björk Guðjónsdóttir sópransöngkona syngur einsöng í fjórum verkum af fimmtán og gerir það vel. Hún hefur mjög fallega rödd og beitir henni oftast af miklu listfengi, þó hættir tóninum einstaka sinnum til að verða full þungur, þ.e. vibratóið stórt og í hægari kantinum, sem gefur laglínunum dramatískari blæ en trúarlegri tónlist hæfir, að mínu mati. Vox feminae er frábær kór. Samhljómurinn er góður og tónninn tær og hrífandi og gleður eyrað. Geisladiskurinn rennur í heild sinni ljúflega í gegn og kallar á aðra umferð þegar síðasta lagið er á enda. Hann hefur mild sefandi áhrif og fyllir andrúmsloftið hátíðlegri ró. Við Íslendingar eigum láni að fagna að hér skuli vera starfræktir svo öflugir kórar eins og Vox feminae og er það ósk mín að þessar ágætu konur haldi áfram að gefa út afraksturinn af sínu vel heppnaða samstarfi. Ólöf Helga Einarsdóttir Morgunblaðið laugardaginn 23. júní, 2007, Menningarlíf, Tónlist, Geisladiskur
Lesa meira

Kvennakór Hafnarfjarðar starfsárið 2006-2007

12. júní 2007
Kvennakór Hafnarfjarðar hefur nú lokið sínu tólfta starfsári sem var viðburðarríkt í alla staði. Á árinu gaf kórinn út geisladisk, fór í æfingarbúðir til Nesjavalla, hélt ýmsa tónleika m.a. "tangó"-vortónleika ásamt Tangósveit lýðveldisins og fór í tónleikaferð til Sauðárkróks. Kvennakór Hafnafjarðar heldur úti vefsetrinu; http://kvennakorinn.org/ þar sem hægt er að fræðast um starfsemi kórsins. Lesið meira um síðasta starfsár Kvennakórs Hafnafjarðar í þessari frétt.Fréttatilkynning frá Kvennakór Hafnafjarðar
Kvennakór Hafnarfjarðar hefur nú lokið sínu tólfta starfsári sem var viðburðarríkt í alla staði. Ákvörðun hafði verið tekin á tíu ára afmæli kórsins að gefa út geisladisk og valin voru þau lög sem kórinn hafði hvað mest gaman af að syngja síðast liðin tíu ár. Æfingar hófust í byrjun september og æft var fyrir upptöku sem fram fór í Fella og Hólakirkju síðustu helgina í september. Upptökustjóri var Sigurður Rúnar Jónsson, Diddi fiðla, fagmennska hans var í fyrirrúmi og hvergi slegið af. Upptakan tókst vel og síðdegis á sunnudeginum voru þau Diddi og Hrafnhildur Blomsterberg kórstjóri ánægð með árangurinn. Unnu þau síðan saman að vinnslu disksins, sem leit dagsins ljós í enda desember. Diskurinn ber nafnið “Stiklur” en Hildigunnur Rúnarsdóttir hafði á tíu ára afmælinu samið lag fyrir kórinn með því nafni, útsett af Lilju Sólveigu Kristjánsdóttur. Í janúarbyrjun var svo farið að æfa fyrir vortónleikana sem yrðu með tangóívafi og með okkur höfðum við fengið Tangósveit lýðveldisins til samstarfs. Kórinn fór svo í sínar árlegu æfingabúðir 2. til 4. febrúar sem að þessu sinni voru á Nesjavöllum. Þegar nær dró tónleikum var æft með Tangósveitinni, sem skipa þeim Hjörleifi Valssyni , fiðlu, Tatu Kantomaa, bandoneon, Ástvaldur Traustason, harmoniku, Vignir Þór Stefánsson, pianó og Bjarna Sveinbjörnssyni, kontrabassa ásamt einsöngvaranum Jóhanni Friðgeiri Valdimarssyni. Tónleikarnir fóru svo fram 26. apríl í sal SÁÁ og 28. apríl í Hamrinum, sal Flensborgarskóla, fullt var á báðum tónleikunum. Suðræn og seiðandi sveifla tangósins féll tónleikagestum vel í geð. Mikil tilhlökkun ríkti 4. maí þegar kórkonur lögðu af stað norður í land, eða á Sauðárkrók, þar sem Karlakórinn Heimir hafði boðið okkur að halda sameiginlega tónleika með þeim á Sæluviku þeirra norðanmanna. Boðið var í kvöldverð ásamt mökum. Síðan var sameiginleg æfing hjá kórunum. Tónleikarnir voru haldnir í sal Frímúrara, Heimismenn sungu fyrir hlé en við eftir hlé, sungum við hluta af vorprógramminu okkar. Pétur Pétursson einn Álftagerðisbræðra tók áskorun okkar að syngja einsöng í laginu Litli tónlistarmaðurinn. Sameiginlega sungu svo kórarnir þrjú lög. Tónleikagestir kunnu vel að meta og létu óspart ánægju sína í ljós og var hvert sæti skipað. Eftir tónleikana var haldið á dansleik í Ljósheimum þar sem hljómsveitin Von spilaði fyrir dansi og sáu þeir til þess að ekki var autt dansgólfið. Er það samdóma álit kórkvenna að Heimismenn séu heiðursmenn heim að sækja og vonandi eiga heimsóknirnar eftir að verða fleiri. Kórstarfið er bæði gefandi og lifandi í alla staði, ef þið hafið áhuga að koma og starfa með okkur í Kvennakór Hafnafjarðar þá hikið ekki við að hafa samband. Við byrjum æfingar aftur í byrjun september. Upplýsingar veita Steiney (699 0361), Inga Lára (892 1563), Helga M. (897 4821), Ágústa (868 4399) og Gréta (847 8043). Geisladiskurinn Stiklur er til sölu hjá Fjarðarkaupum, Músík og Sport og 12 tónum. Helga Margrét Sveinsdóttir formaður Kvennakórs Hafnarfjarðar http://kvennakorinn.org/
Lesa meira

Kvennakór Akureyrar tekur þátt í Kórastefnu við Mývatn 7. – 10. júní

5. júní 2007
Kvennakór Akureyrar mun taka þátt í Kórastefnunni við Mývatn sem haldin verður um næstu helgi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Listrænn stjórnandi Kórastefnunnar er Margrét Bóasdóttir sem er aðildarkórum Gígjunnar vel kunn. Lynnel Joy Jenkins kemur frá Bandaríkjunum til þess að stjórnar heimstónlistinni hjá kvennakórunum sem sækja kórastefnuna. Lynnel er nú að koma í annað sinn til Íslands, en hún kenndi á námskeiði í Skálholti fyrir kórstjóra árið 2002. Hún hefur nýverið lokið doktorsprófi í kórstjórn og er ein af aðalstjórnendum American Boychoir.Kórastefna við Mývatn 2007, 7. júní – 10. júní í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Fimmtudagur 7. júní kl. 20.30 Félagsheimilið Skjólbrekka Kvennakór Akureyrar, stjórnandi: Arnór Vilbergsson Kammerkór Norðurlands, stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson Miðnætursöngur í Jarðböðunum við Mývatn Föstudagur 8. júní kl. 20.30 Hraunhvelfing Laxárstöðvar í Aðaldal Söngfélagið Sálubót, stjórnandi: Jaan Alavere, Uppsveitasystur, stjórnandi: Magnea Gunnarsdóttir, Vestfirsku valkyrjurnar, stjórnandi: Bjarney I. Gunnlaugsdóttir Kvennakór Akureyrar, stjórnandi: Arnór Vilbergsson Sunnudagur 10. júní kl. 15.00 Íþróttahúsið í Reykjahlíð, Hátíðartónleikar. John Rutter: Mass of the Children og heimstónlist frá 7 löndum. Kvennakór þátttakenda, Stjórnandi: Lynnel Joy Jenkins Gróa Hreinsdóttir, píanó Blandaður kór þátttakenda, Stúlknakór Akureyrarkirkju Halla Dröfn Jónsdóttir, sópran, Ásgeir Páll Ágústsson, bariton, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson Forsala aðgöngumiða: Penninn, Hafnarstræti Akureyri Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Húsavík Verslunin Samkaup, Reykjahlíð við Mývatn
Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 146
    • 147
    • 148
    • 149
    • 150
    • 151
    • 152
    • 153
    • 154
    • 155
    • 156
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra