• Fréttir
  • Tónlistin
    • Útgáfa
      • Freyjukórinn
      • Kvk Akureyrar
      • Kvennakór Suðurnesja
      • Norðurljós
      • Kvk Kaupmannahöfn
      • Léttsveit Rvíkur
      • Kvk Ljósbrá
      • Gospelsystur
      • Seljur
      • Lillukórinn
      • Ymur
      • Kvk Garðabæjar
      • Kvk Hafnarfjarðar
      • Jórukórinn
      • Kvk Reykjavíkur
      • Vox Feminae
    • Landsmót
      • Árið 2020 - Reykjavík
      • Árið 2017 - Ísafjörður
      • Árið 2014 - Akureyri
      • Árið 2011 - Selfoss
      • Árið 2008 - Hornafjörður
      • Árið 2005 - Hafnarfjörður
      • Árið 2002 - Reykjanesbær
      • Árið 1999 - Siglufjörður
      • Árið 1997 - Reykholt í Borgarfirði
      • Árið 1995 - Reykjavík
      • Árið 1992 - Ýdölum
    • Aðildakórar
      • Fyrrverandi aðildarkórar
    • Heiðursviðurkenningar
      • Hrönn Hjaltadóttir
      • Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir
      • Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir
      • Gróa María Þorvaldsdóttir
      • Sigríður Anna Ellerup
      • Guðrún Ósk Sæmundsdóttir
      • Heiða Gunnarsdóttir
      • Margrét Pálmadóttir
      • Margrét Bóasdóttir
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
      • Stjórn Gígjunnar 2018-2019
      • Stjórn Gígjunnar 2017-2018
      • Stjórn Gígjunnar 2016-2017
      • Stjórn Gígjunnar 2015-2016
      • Stjórn Gígjunnar 2014-2015
      • Stjórn Gígjunnar 2013-2014
      • Stjórn Gígjunnar 2012-2013
      • Stjórn Gígjunnar 2011-2012
      • Stjórn Gígjunnar 2010-2011
      • Stjórn Gígjunnar 2009-2010
      • Stjórn Gígjunnar 2008-2009
      • Stjórn Gígjunnar 2007-2008
      • Stjórn Gígjunnar 2006-2007
      • Stjórn Gígjunnar 2005-2006
      • Stjórn Gígjunnar 2004-2005
      • Stjórn Gígjunnar 2003-2004
  • Hafa samband
  • Fréttir
  • Forsíða
  • Hafa samband
  • Tónlistin
    • Útgáfa
    • Landsmót
    • Aðildakórar
    • Heiðursviðurkenningar
  • Um Gígjuna
    • Gígjan
    • Tónverkasjóður
    • Fundargerðir
    • Stofnfundur
    • Lög
    • Stjórn
  • 30074169_1661176133951423_1871409583_o

    Landssamband íslenskra Kvennakóra

  • Freyjukórinn
  • jorukorinn2017(1)
  • Kvennakór Reykjavíkur
  • Vortonleikar_2015_Gugga
  • Kvennakor Gardabaejar 1
  • Cantabile1

Aðalfundur Gígjunnar verður haldinn 10. mars kl. 14:45

10. febrúar 2007
Stjórn Gígjunnar boða til aðalfundar laugardaginn 10. mars 2007. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum Gígjunnar. Aðalfundurinn verður haldinn í Söngskólanum Domus Vox sem staðsettur er á 2. hæð á Laugarvegi 116 (ská á móti Hlemmi) og hefst fundurinn stundvíslega kl. 14:45.Dagskrá aðalfundar
Formaður Gígjunnar Ásdís Helga mun fara yfir skýrslu síðasta starfsárs stjórnar Gígjunnar, reikningar verða skoðaðir og útskýrðir. Á fundinum þarf einnig að kjósa nýja fulltrúa í stjórn en að þessu sinni ganga þrír stjórnarmeðlimir úr stjórninni. Farið verður yfir lagabreytingar og eru aðilarkórar beðnir um að koma öllum tillögum að lagabreytingum og tillögum til stjórnarkjörs sem fyrst til stjórnar Gígjunnar. Lög Gígjunnar er að finna hér á vefsetrinu undir linknum Lög. Hægt er að senda tillögur á netfang ritara; heida68(hjá)simnet.is. Á fundinum verður einnig árgjald fyrir næsta starfsár ákveðið en það hefur verið það sama frá stofnun Gígjunar. Í lok aðalfundar verður farið yfir önnur mál og eru aðilarkórar kvattir til þess að koma með fyrirspurnir eða erindi inn á fundinn. Aðildarkórar eru hvattir til þess að senda stjórnir, raddformenn, formenn og stjórnendur sína á aðalfundinn en hverjum kór er heimilt að senda eins marga fulltrúa og honum lystir. Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndastarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína. Aðalfundurinn verður haldinn í Söngskólanum Domus Vox sem staðsettur er á 2. hæð á Laugarvegi 116 (ská á móti Hlemmi) og hefst fundurinn stundvíslega kl. 14:45.
Lesa meira

Kvennakór Garðabæjar tekur upp geisladisk og undirbýr ferð til Barcelona

14. janúar 2007
Það er í nógu að snúast hjá Kvennakór Garðabæjar um þessar mundir. Stefnt er að upptöku geisladisks á árinu, sungin verður konudagsmessa í Vídalínskirkju, haldin verður opin kóræfing á Garðatorgi og er kórinn einnig að undirbúa ferðalag til Barcelona þar sem hann mun taka þátt í alþjóðlegri kórahátíð. Þetta er bara brot af því sem er að gerast hjá Kvennakór Garðabæjar á árinu.Fréttatilkynning frá Kvennakór Garðabæjar
Nóg að gera á nýju ári ! Vorönn Kvennakórs Garðabæjar hófst formlega 8. janúar 2007. Að vanda var spenningur í loftinu og ánægjulegt að hitta kórfélagana eftir jólafríið. Framundan er kórstarfið með hefðbundnu sniði, æft verður hvert mánudagskvöld og annan hvern miðvikudag í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Ingibjörg Guðjónsdóttir mun leiða hópinn af sinni miklu snilld og Kristinn Örn Kristinsson heldur áfram sem píanóleikari kórsins. Nokkrir atburðir standa upp úr hjá Kvennakór Garðabæjar á þessari önn. Konudagsmessan verður á sínum stað 18. febrúar, en hefð hefur skapast fyrir því að kórinn syngi í Vídalínskirkju á þeim degi enda eingöngu konur sem sjá um messuhaldið á þessum merka degi. Árlegt fjáröflunarkvöld kórsins verður í marsbyrjun en með öðru sniði en undanfarin ár. Um miðjan mars er ferðinni heitið til Borgarfjarðar þar sem kórinn mun taka upp efni í Reykholtskirkju fyrir væntanlegan geisladisk. Kóræfingar fram að þeim tíma munu að mestu ganga út á að fínpússa þau tónverk sem geisladiskinn munu prýða. Síðari hluta apríl býður Kvennakór Garðabæjar bæjarbúum að fylgjast með því hvernig kóræfingar ganga fyrir sig en þá verður svokölluð opin æfing á Garðatorgi. Kórinn hefur áður staðið fyrir slíkri uppákomu sem þótti takast með eindæmum vel og því var ákveðið að endurtaka leikinn í ár. Í maí verða svo að sjálfsögðu vortónleikar, sem verða nokkurs konar upphitun fyrir Alþjóðlegu kórahátíðina í Barcelona sem Kvennakór Garðabæjar mun taka þátt í september 2007. Það er því nóg af verkefnum framundan hjá kórkonum. Inn í þetta fléttast svo fjáröflun kórkvenna sem er stór hluti af kórstarfinu. Við vonum að sem flestir mæti á uppákomur kórsins á þessari önn og styrki okkur í gegnum kökubasarinn og skrái sig sem styrktarfélaga kórsins. Á heimasíðu Kvennakórs Garðabæjar, www.kvennakor.is má finna ýmsar upplýsingar um kórinn auk fjölda mynda. Endilega kíkið við á síðunni og ekki gleyma að kvitta í gestabókina.
Lesa meira

Sibilius söngvarasamkeppni í Finnlandi 2007

2. janúar 2007
Gígjunni hefur borist póstur með upplýsingum um alþjóðlega söngvarakeppni til minningar um Jean Sibelius. Nánari upplýsingar um þessa keppni m.a. umsóknareyðublað er að finna á vefsetri keppninnar; www.sibeliuslaulukilpailu.fi. Fréttinni fylgir tölvupóstur með frekari upplýsingum.The International Sibelius Singing Competition 2007
Hey Gigjan ! I would like to inform you and hope you could further inform your teachers and students about The International Sibelius Singing Competition 2007 by the Sibelius Festival, the Sibelius Academy and the City of Jarvenpaa 50 year Memorial of Jean Sibelius. The competition is open to female and male citizens of; Denmark, Estonia, Finland, Iceland, Latvia, Lithuania, Norway and Sweden born in or after 1972. PRIZES I €10,000 II € 5,000 III € 2,500 INFO www.sibeliuslaulukilpailu.fi Sendandi bréfs: rampuja(hjá)siba.fi
Lesa meira

Tendrum ljós á tré - tónleikagagnrýni

2. janúar 2007
Sönghúsið Domus Vox hélt aðventutónleika í Hallgrímskirkju 12. og 13. desember. Á tónleikunum komu fram undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur rúmlega 200 söngkonur á öllum aldri ásamt einsöngvara og hljóðfæraleikurum. Kórarnir sem um ræðir eru: Vox feminae, Vox junior, Stúlknakór Reykjavíkur og Gospelsystur Reykjavíkur. Jónas Sen skrifaði eftirfarandi tónleikagagnrýni í Morgunblaðið um tónleikana.Tónleikagagnrýni - Jónas Sen – Morgunblaðið, þriðjudaginn 19. desember 2006
Það var stór hópur kvenna sem gekk inn í Hallgrímskirkju á þriðjudagskvöldið. Vox feminae, Gospelsystur Reykjavíkur og Stúlknakór Reykjavíkur, en þeim öllum stjórnar Margrét Pálmadóttir. Bara að horfa á allar þessar konur ganga svo tignarlega myndaði spennuþrungið andrúmsloft: greinilegt var að að eitthvað var að fara að gerast. Ósennilegt er að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðum. Fyrsta lagið sem var sungið, „Guð sem skapar líf og ljós“ eftir Hjálmar H. Ragnarsson við ljóð eftir Kristján Val Ingólfsson, var einstaklega áhrifa mikið. Trumbuleikur Eggerts Pálssonar var hrífandi og skemmilega frumstæður, bara hann gerði að verkum að það var eins og lagið hefði verið samið fyrir þúsund árum. Söngurinn var líka svo tilfinningaþrunginn, en samt svo tæknilega öruggur, að unaður var á að hlýða. Á efnisskránni voru lög ú rýmsum áttum og var lagavalið í það heila fjölbreytt. Flest kom prýðilega út, það var helst „Ave Maria“ eftir Caccini sem var heldur knúsað í hljóðfæraútsetningunni, en margt annað var frábært eins og t.d. „Slá þú hjartans hörpu strengi“ eftir Bach, sem var afar heillandi. Almennt var söngurinn sérlega vandaður, bæði tær og hljómmikill, undir markvissri stjórn Margrétar. Litlu börnin, sem gengu inn í kirkjuna um miðbik tónleikanna, voru ótrúlega sæt og sungu líka merkilega hreint. Ekki verður hjá komist að nefna frammistöðu ungs slagverksleikara Kristjáns H. Hafliðasonar, en hann var í hlutverki Litla trommuleikarans og stóð sig sérlega vel. Einnig verður að minnast á einsöng Hönnu Bjarkar Guðjónsdóttur í fáeinum atriðum, en hann var fagur og vel mótaður. Nokkrir hljóðfæraleikarar spiluðu með kórunum, og áður en konurnar gengu inn léku fjórir þeirra, Hjörleifur Valsson fiðluleikari, Jónína Auður Hilmarsdóttir víóluleikari, Örnólfur Kristjánsson sellóleikari og Eydís Franzdóttir óbóleikari, kvartett eftir Mozart. Þetta kom yfirleitt ágætlega út. Og í hinum tónleikaatriðunum var hljóðfæraleikurinn eins og best verður á kosið. Þetta voru frábærir tónleikar! Jónas Sen – Morgunblaðið
Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • ..
    • 156
    • 157
    • 158
    • 159
    • 160
    • 161
    • 162
    • 163
    • 164
    • 165
    • 166
    • ..
    • 189
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Landsmót Gígjunnar haldið í maí 2023
    31. ágúst 2022
  • Landsmóti frestað til 2023
    25. janúar 2021
  • Verklagsreglur um æfingafyrirkomulag á tímum samkomutakmarkana fyrir kvennakóra innan Gígjunnar
    10. september 2020
  • Landsmót Gígjunnar haldið 16-18 sept 2021
    11. júní 2020
  • Landsmóti Gígjunnar frestað
    14. mars 2020
  • Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
    11. febrúar 2020
  • Jólakveðja
    25. desember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
    20. nóvember 2019
  • Aðventutónleikar Kvennakórs Garðabæjar
    19. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Kvennakórs Kópavogs
    18. nóvember 2019
  • Jólatónleikar Léttsveitarinnar
    13. nóvember 2019
  • Kvenna megin
    1. nóvember 2019
  • Aðalfundur Gígjunnar 2019
    28. október 2019
  • Mæðradagstónleikar Kvennakórs Akureyrar
    8. maí 2019
  • Dívur – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
    3. maí 2019
  • Vortónleikar Kvennakórs Kópavogs
    29. apríl 2019

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

  • Kleppsvegur 132, 104 Reykjavík
  • gigjan2003@gmail.com
  • 847 1724
  • 690403 3660
© 2025 Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra